Opinberar stofnanir
Reynslusaga: Verkmenntaskólinn á Akureyri
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Starfsmaður
Kerfisstjóri VMA
Frjáls og opinn hugbúnaður
Í VMA höfum við notað nokkrar gerðir af Linux netþjónum sem hafa séð um þjónustur á borð við eldveggi, proxy, póst, vírushreinsun og vefþjónustur svo eitthvað sé nefnt. Nú notum við Open Enterprise netþjóna frá Novell ásamt OpenSuse, Gentoo og Ubuntu. Haustið 2008 fórum við af stað með tilraun sem byggir á Linux terminal þjóni frá Ubuntu. Í dag eru um 30 gamlar vélar á því neti og skrá sig inn á terminalþjóninn þar sem aðgangur er að öllum helstu forritum sem þörf er á í venjulegau skólastarfi í dag. Verið er að setja upp sams konar lausn sem byggir á OpenSuse til að fá samanburð á kerfunum.
Ástæða fyrir vali
Ástæður fyrir því að þessi hugbúnaður var valinn er fyrst og fremst verð og
stöðugleiki. Gerir ekki eins miklar vélbúnaðarkröfur og þar af leiðir að fjárfesting
í tölvubúnaði nýtist betur en ella.
Reynsla
Almennt er reynslan af opnum lausnum mjög góð.
Kostir
Ódýr og stöðugur/traustur.
Gallar
Uppsetningar hafa ekki alltaf verið auðveldar og þjónusta við hugbúnaðinn getur
verið svolítið snúin á köflum.

