Félagasamtök

Frjálsa samfélagið

Frjálsa samfélagið samanstendur af öllum sem hafa áhuga á, nota og vinna með frjálsan og opinn hugbúnað, opna staðla, frjálsa þekkingu og upplýsingafrelsi almennt. Hvert verkefni dregur sér ákveðinn hóp einstaklinga sem teljast þá hluti af því verkefni og jafnframt frjálsa samfélaginu öllu. Ýmis félög og stofnanir hafa verið settar á laggirnar til þess styðja við frjálsa samfélagið, bæði á Íslandi og erlendis.

Íslensk félög og samtök

RGLUG

Reykjavík GNU/Linux User Group (RGLUG) er notendahópur frjáls og opins hugbúnaðar á Íslandi. Allir þeir sem hafa áhuga á frjálsum og opnum hugbúnaði, þurfa hjálpa eða vilja veita aðstoð geta skráð sig á tölvupóstlista félagsins þar sem oft eru líflegar umræður í gangi. Félagið stendur af og til fyrir fundum þar sem félagsmenn hittast utan tölvupóstlistans og ræða saman. Fundirnir eru haldnir þegar húsnæði, tími og áhugi er til staðar. RGLUG hefur staðið fyrir komu Richard Stallman, upphafsmanns frjáls hugbúnaðar, til Íslands ásamt öðrum atburðum.

Ísfoss

Félag um opinn hugbúnað í skólastarfi (Ísfoss) var stofnað á Degi hugbúnaðarfrelsis árið 2006. Félagsmenn eru, eins og nafnið gefur til kynna, allir áhugamenn um notkun opins hugbúnaðar í skólastarfi. Stofnfélagar Ísfoss eru um tuttugu talsins og af því ætla áhugi fyrir frjálsum og opnum hugbúnaði í íslenskum skólum mikill.

RPUG

Reykjavík Python User Group (RPUG) er notendahópur frjálsa og opna forritunarmálsins Python. Forritunarmálið er notað af mörgum íslenskum fyrirtækjum, þar á meðal CCP, Dohop og auk þess sem margir íslenskir forritarar eru hrifnir af málinu. RPUG einbeitir sér ekki beint frelsinu sem fylgir málinu heldur notkun þess og uppbyggingu. Félagið stendur fyrir fundum þar sem meðlimir hittast og kynna hver fyrir öðrum ýmsa virkni í Python og forrit tengd málinu í óformlegu fyrirlestrarformi.  

FSFÍ

Félag um stafrænt frelsi á Íslandi (FSFÍ) eru nýstofnuð regnhlífarsamtök fyrir einstaklinga, félög, fyrirtæki og stofnanir sem vilja nota, hlúa og styðja við stafrænt frelsi á Íslandi. Markmið FSFÍ er vera vera lagaleg stoð fyrir stafrænt frelsi í öllu formi á Íslandi auk þess standa fyrir kynningu og útbreiðslu á hugmyndum um stafrænt frelsi. Félagið stendur fyrir ýmsum atburðum sem kynna ýmis málefni tengd stafrænu frelsi og er bakhjarl fyrir félög eins og RGLUG, ÍSFOSS, Wikimedia hópinn á Íslandi og fleiri. Félagið stendur fyrir árlegri ráðstefnu um stafrænt frelsi sem var haldin í fyrsta skiptið árið 2008. Á ráðstefnunum koma fram talsmenn ýmissa hópa bæði innanlands og utanlands og kynna stafrænt frelsi fyrir Íslendingum. 

Nokkur erlend félög og samtök

FSF

Frjálsa hugbúnaðarstofnunin (e. Free Software Foundation), FSF, var stofnuð árið 1985 af Richard Stallman til þess halda utan um GNU verkefnið og önnur frjáls hugbúnaðarverkefni auk þess kynna frelsi tölvunotenda og vernda alla notendur frjáls hugbúnaðar. Stofnunin er með höfuðstöðvar í Boston í Bandaríkjunum og er rekin af frjálsu peningaframlagi einstaklinga og fyrirtækja sem styðja frjálsan hugbúnað. 

FSFE

Evrópska frjálsa hugbúnaðarstofnunin (e. Free Software Foundation Europe), FSFE, eru samtök sem vinna markmiðum Frjálsu hugbúnaðarstofnunarinnar, FSF, í Evrópu. Svipuð félög eru einnig rekin á Indlandi og í Suður-Ameríku.

OSI

Opið hugbúnaðarfrumkvæði (e. Open Source Initiative), OSI, eru samtök sem styðja við og kynna þróunaraðferð opins hugbúnaðar. Samtökin voru stofnuð árið 1998 og halda utan um skilgreiningu opins hugbúnaðar ásamt því halda utan um mögulega opin hugbúnaðarleyfi. 

Auk þessara félaga starfa ýmis önnur samtök, svo sem EFF (Electronic Frontier Foundation) sem verndar réttindi netverja, Creative Commons sem heldur utan um sameignarleyfin fyrir sköpun og ýmis félög og stofnanir sem liggja á bak við sérstök frjáls og opin hugbúnaðarverkefni. 









Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica