Frjálsir hátíðisdagar
Frjálsir hátíðisdagar
Á hverju ári eru nokkrir dagar haldnir hátíðlegir af stuðningsfólki frjáls hugbúnaðar, opinna staðla og stafræns frelsis. Auk hátíðisdaganna eru einnig haldnar ráðstefnur um sérstök verkefni, viðfangsefni eða samfélagið allt. Hátíðisdagarnir eru öðruvísi en ráðstefnur að því leyti að eftir að efnt hefur verið til dagsins eru það hópar í borgum, bæjum og löndum sem taka sig til og halda daginn hátíðlegan um allan heim, hver á sínum stað.
Frjáls hugbúnaður
Hugbúnaðarfrelsi
Dagur hugbúnaðarfrelsis (Software Freedom Day) er hátíðisdagur sem snýst aðallega um frjálsan hugbúnað og er haldinn þriðja laugardaginn í september ár hvert. Dagurinn hefur verið haldinn frá því árið 2004. Skipulagning dagsins og hópanna ár hvert er í höndum samtakanna Alþjóðlegt hugbúnaðarfrelsi (e. Software Freedom International). Stjórn samtakanna er samsett af aðilum um allan heim, meðal annars TheOpenCD verkefninu, Debian og Ubuntu GNU/Linux dreifingunum og Opna þekkingarhúsi Afríku. Forstjóri samtakanna er Pia Waugh frá Linux samtökum Ástralíu en hún hefur verið yfir samtökunum síðan 2006.
Hugbúnaðareinkaleyfi
Heimsdagur gegn hugbúnaðareinkaleyfum (World Day Against Software Patents) var dagur skipulagður þann 24. september 2008. Dagsetningin var valin í tilefni af því að fimm ár voru liðin frá því að Evrópusambandið samþykkti að takmarka umfang einkaleyfalaga og þannig vernda fyrirtæki gegn hugbúnaðareinkaleyfum. Meira en 80 fyrirtæki komu að skipulagningu dagsins. Ekkert hefur verið gefið út um hvort dagurinn verði árlegur viðburður eða hvort efnt verði til hans þegar tilefni gefst til.
Uppsetning frjáls hugbúnaðar
Uppsetningardagur frjáls hugbúnaðar í Suður-Ameríku (FLISOL) er stærsti skipulagði uppsetningardagur á hugbúnaði í heiminum og er haldinn fjórða sunnudaginn í apríl ár hvert. Á uppsetningardegi frjáls hugbúnaðar koma notendur og áhugafólk um tölvur saman til þess að hjálpa þeim sem áhuga hafa að setja upp frjálsan hugbúnað. FLISOL uppsetningardagurinn hefur verið haldinn frá árinu 2006 í flestum ríkjum Suður-Ameríku. Árið 2008 var dagurinn haldinn hátíðlegur í 200 borgum í 18 löndum.
Opnir staðlar
Skrifstofuskjöl
Dagur skjalafrelsis (Document Freedom Day) er hátíðisdagur sem hvetur til notkunar frjálsra skjalasniða og er haldinn síðasta miðvikudaginn í mars ár hvert. Dagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur árið 2008, en ákveðið var að halda upp á daginn árlega. Skipulagning dagsins er í höndum sjálfboðaliða en dagurinn er studdur af fyrirtækjum og stofnunum eins og Google, IBM, Frjálsu hugbúnaðarstofnuninni (e.Free Software Foundation), ODF bandalaginu (e.ODF Alliance) og fleirum.
Samskipti
Dagur opinna umræðna (Open Discussion Day) er hátíðisdagur helgaður opnum og frjálsum samskiptum í gegnum opna staðla og er haldinn ár hvert þann 19. maí. Dagurinn leggur áherslu á notkun XMPP staðalsins (einnig þekktur sem Jabber), sem er notaður af ýmsum hugbúnaði fyrir samskipti eins og til dæmis snarboðalausninni (e.instant messaging) Google Talk. Dagurinn er enn sem komið er frekar lítill í sniðum og skipulagður af örfáum einstaklingum sem hafa mikinn áhuga á Jabber.
Annað stafrænt efni
Aðgengi
Dagur opins aðgengis (Open Access Day) er hátíðisdagur sem er ætlað að breiða út skilning á opnum aðgangi að gögnum. Dagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur 14. október 2008 en það hefur verið ákveðið, í framhaldi af vel heppnuðum degi, að í október 2009 verður haldin vika opins aðgengis (Open Access Week). Dagsetning vikunnar hefur enn ekki verið ákveðin. Upphafsaðilar dagsins/vikunnar eru samtökin SPARC (the Scholarly Publishing and Academic Resources Coalition), PLoS (Public Library of Science) og nemendur um frjálsa menningu (Students for Free Culture).

