Listi yfir staðla

Opin og stöðluð skráarsnið fyrir skrifstofuskjöl

Skrifstofuskjöl ferðast á milli stofnana, fyrirtækja og einstaklinga og því er mikilvægt að nota opna staðla til að tryggja að sem flestir geti opnað og lesið skjölin. Velja þarf skráarsniðið eftir gerð skjalsins: Lokaskjöl á PDF sniði, breytanleg skjöl á ODF eða OOXML sniði og stöðluð ívafsmál eins og HTML og DocBook eru nytsamleg þegar þörf er á stöðluðu útliti. Lesa meira
 

Opnir staðlar í samskiptum yfir Netið

Í samskiptum milli einstaklinga eru ýmsir opnir og staðlaðir samskiptamátar til hvort sem um rauntímasamskipti (til dæmis með fjarfundarbúnaði) eða ósamstillt samskipti (eins og til dæmis í gegnum tölvupóst) ræðir. Jafnvel samskipti tölvu við aðra tölvu yfir Netið hafa verið stöðluð sem einfaldar samhæfni tölvukerfa. Lesa meira
 

Opin og stöðluð skráarsnið fyrir hljóð- og myndefni

Hljóð- og myndefni er í dag oftast geymt á lokuðum sniðum sem þýðir að efnið varðveitist illa og gæti glatast í náinni framtíð. Opin og stöðluð skráarsnið fyrir margmiðlunarefni, bæði hljóð- og myndefni, eru til en hafa ekki náð nægilegri útbreiðslu nema PNG og JPEG kyrrmyndir. Ástæðan er líklegast lélegur stuðningur hugbúnaðar- og tækjaframleiðenda. Lesa meira
 






Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica