Listi yfir staðla

Opin og stöðluð skráarsnið fyrir hljóð- og myndefni

Stór hluti daglegrar tölvunotkunar felur á einn eða annan hátt í sér notkun á hljóði eða myndum (teiknuðum myndum, ljósmyndum og hreyfimyndum). Það er þó ekki sjálfsagt skráarsniðin sem hljóð og myndir eru vistuð í séu opin og stöðluð. Hljóðupptökur og myndir eru oft tekin upp með sérstökum búnaði (ljósmyndavél, kvikmyndatökuvél, hljóðupptökutæki og fleira) og framleiðendur tækjanna hafa færi á nota óstöðluð eða jafnvel sín eigin sérútbúnu skráarsnið í stað staðlaðra sniða.

Sum af þessum sniðum eru háð einkaleyfum sem íþyngja notkun og upptöku þeirra. Neytendur þurfa fara varlega í vali á tækjabúnaði og reyna eftir fremsta megni velja tæki sem styðja opna staðla. Það val er þó ekki alltaf fyrir hendi vegna þess hversu háðir notendur eru einstaka tækjaframleiðendum.

Hljóðefni

Vinsælasta stafræna skráarsniðið fyrir hljóð í dag er MP3. Skráarsniðið sem er varið með einkaleyfum náði vinsældum með hjálp Netsins vegna þess hversu vel aðferðin þjappaði saman hljóðskrám. MP3 er dæmi um hljóðþjöppun með gæðatapi en þá er tíðnisviðum sem mannseyrað greinir ekki sleppt. ATRAC er dæmi um hljóðþjöppun án þess gæði tapist sem var til dæmis notað fyrir MiniDisc spilara frá Sony og Panasonic.

Hljóðupptökur með gæðatapi

Vorbis er opið skráarsnið fyrir hljóðupptökur með gæðatapi hannað af Xiph samtökunum. Vorbis er í raun ekki skráarsnið heldur hljóðvíxlbreytir (e. audio codec) sem er oftast notaður með Ogg geymsluskráarsniðinu. Af þeirri ástæðu eru hljóðskrárnar oftast sagðar vera á Ogg/Vorbis sniði. Ogg/Vorbis er oft sagt vera staðgengill MP3 en það hefur verið sýnt fram á Ogg/Vorbis nái fram betri þjöppun miðað við sömu gæði og MP3 skrá.

Um tíma stóð til Ogg/Vorbis myndi verða staðlað af W3C (World Wide Web Consortium) sem hluti af HTML5 en W3C hætti við eftir fyrirtækin Nokia og Apple ýjuðu því einhver einkaleyfi séu til sem vernda hluta af Ogg sniðunum. Mozilla Firefox vafrinn styður Ogg líkt og það hluti af HTML5 staðlinum frá og með útgáfu 3.1 eftir rannsóknir Mozilla samtakana á einkaleyfisviðvörunum Nokia og Apple leiddu í ljós líklegast væri ekki mikið til í staðhæfingum fyrirtækjanna.

Xiph hefur einnig hannað Speex, sérstakan raddvíxlbreyti fyrir raddupptökur sem hægt er vista í skrám á sniðinu Ogg/Speex. Skráarending Ogg/Vorbis er oftast .ogg (.oga er einnig notað) og skráarending Speex er .spx.

Hljóðupptökur án gæðataps

FLAC er opinn hljóðvíxlbreytir fyrir hljóðupptökur án gæðataps viðhaldið af Xiph samtökunum, þeim sömu og standa baki Vorbis og Speex. FLAC skrár nota einnig Ogg geymsluskráarsniðið til þess vista hljóðupptökuna sem skrá. Þjöppuð FLAC hljóðupptaka getur verið allt 46% af upprunalegri stærð og ef FLAC skráin er afþjöppuð verður úr nákvæm eftirmynd upprunalegu hljóðupptökunnar. FLAC notar skráarendinguna .flac.

Myndefni

Skráarsnið fyrir myndefni geta einnig verið háð einkaleyfum jafnvel þótt þau séu stöðluð. Hlutar af vinsæla MPEG-4 hreyfimyndastaðlinum eru verndaðir með einkaleyfi og GIF skráarsniðið fyrir myndaþjöppun án gæðataps var verndað með einkaleyfum þangað til fyrir skömmu þegar einkaleyfið rann út. 

Myndir án gæðataps

PNG (Portable Network Graphics) er opinn ISO staðall fyrir myndir án gæðataps. PNG var hannað til koma í staðinn fyrir GIF sem var háð einkaleyfum og hefur náð mikilli útbreiðslu á veraldarvefnum. SVG (Scalable Vector Graphics) er annað skráarsnið sem hefur náð talsverði útbreiðslu, þó ekki í líkingu við PNG. Myndir vistaðar á SVG sniði eru vigramyndir, það er myndir þar sem línur og annað er skilgreint með stærðfræðilegum vigrum og aðferðum. Fyrir vikið er auðvelt stækka og minnka SVG myndir án þess gæði tapist því stækkun og minnkun er einnig stærðfræðileg aðferð sem beitt er á vigrana. Flestir vafrar styðja PNG og SVG en Microsoft Internet Explorer styður ekki SVG sem mögulega heftir útbreiðslu þess háttar mynda.

Ljósmyndir eru oft geymdar óþjappaðar á stafrænum ljósmyndavélum á svokölluðu RAW skráarsniði, einnig þekktu sem stafræn filma (e.digital negative). Það hefur hrjáð stafrænum filmum útfærslur á RAW skráarsniðum virðast vera sérstakar fyrir hverja ljósmyndavél en Adobe hefur lagt inn umsókn um ISO stöðlun á opna RAW sniðinu sínu sem er einmitt kallað Digital Negative (stafræn filma) eða DNG.

Myndir með gæðatapi

Fyrir þjöppun ljósmynda er opna ISO staðlaða skráarsniðið JPEG (Joint Pictures Expert Group) oftast notað. Staðið hefur til skipta skráarsniðinu út um nokkurt skeið. Þjöppunaraðferðin JPEG 2000 er hugsað sem arftaki JPEG en aðferð er vernduð með einkaleyfum og verður því ekki jafnopin og JPEG er núna. Það hefur einnig verið talað um opna PGF (Progressive Graphics File) sniðið sem arftaka JPEG en PGF var hannað samhliða JPEG 2000. PGF leggur meiri áherslu á hraða en þjöppun en JPEG 2000 gerir andstæðuna og nær því örlítið betri þjöppun ljósmynda þótt þjöppunin taki lengri tíma.

Hreyfimyndir

Einkaleyfin sem hrjá hreyfimyndastaðla hafa valdið því Xiph samtökin og breska ríkissjónvarpið, BBC, hafa þróað opin skráarsnið fyrir hreyfimyndir. Xiph samtökin, sama stofnun og heldur utan um Ogg, Vorbis og önnur margmiðlunarsnið hefur þróað Theora myndvíxlbreytinn (e.video codec). Theora, líkt og Vorbis, notar Ogg geymsluskráarsniðið til þess geyma hreyfimyndaskrár.

Það stóð til setja Theora inn í HTML5 staðalinn á sama tíma og Vorbis en líkt og með Vorbis var fallið frá því vegna staðhæfinga Nokia og Apple um einkaleyfi á Ogg geymsluskráarsniðinu. Mozilla Firefox styður við Ogg/Theora skrár frá og með útgáfu 3.1. BBC lét þróa Dirac hreyfimyndavíxlbreytinn. Munurinn á Theora og Dirac liggur í tæknilegri útfærslu en Dirac notar ögn nýstárlegri aðferðir við þjöppun. Dirac getur verið geymt í Ogg geymsluskrá.

Ogg geymsluskrárnar eru mjög hentugar því þær geta einnig innihaldið OggWrit textavíxlbreytinn (e.text codec) og þannig til dæmis boðið upp á texta við Theora eða Dirac myndbönd. OggWrit getur á sama hátt boðið upp á lagatexta við Vorbis hljóðskrár eða ræðutexta við Speex raddupptökur ef hljóðafspilunarbúnaðurinn styður það.



 







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica