Notkun

Notkun opinna staðla

Leit að opnum staðli

Fyrir venjulega notendur er engin einföld leið til þess að nota opna staðla. Notendur sem vilja nota opna staðla verða að kynna sér efnið mjög vel og oft leita að því hvort opinn staðall sé til sem hægt er að nota. Frjálsa samfélagið er mjög hjálpsamt í þeim efnum en það getur tekið tíma og krefst mikillar þolinmæði að finna hentugan opin staðal við sitt hæfi.

Þróunaraðilar frjáls og opins hugbúnaðar reyna eftir fremsta megni að styðja við þá opnu staðla sem snúa að hverju verkefni fyrir sig. Skrifstofuvöndlar eins og til dæmis OpenOffice.org styðja bæði opnu ISO skráarsniðin ODF og OOXML. Ef enginn opinn staðall er fyrir hendi þá eru samt sem áður samskiptamátar og skráarsnið sem frjálsi og opni hugbúnaðurinn notar opið og aðgengilegt samkvæmt eðli hugbúnaðarins.

Hér á þessu vefsvæði um Stafrænt frelsi eru nokkrir þekktir opnir staðlar sem ættu að minnka þann tíma sem tekur að finna opin staðal sem hægt er að nota. Sumir eru þekktari en aðrir og hafa náð góðri dreifingu og notkun í séreignarhugbúnaði sem og frjálsum hugbúnaði.

Notkun opinna staðla

Þegar opni staðallinn hefur verið fundinn getur notkun hans verið til trafala. Séreignarhugbúnaður styður oft ekki tiltekna opna staðla og ef notkun séreignarhugbúnaðar er ráðandi getur það reynst erfitt fyrir notanda opna staðalsins að hafa samskipti við aðra. Þetta er eitt form af læsingu, vegna eðlis tækninnar, sem veldur gríðarlegum skiptikostnaði.

Notendur verða að yfirstíga sameiginlega skiptikostnað þegar opinn staðall er tekinn í notkun. Allir verða að skipta á sama tíma. Framleiðendur séreignarhugbúnaðar sjá sér ekki hag í því að styðja opna staðla fyrr en þeir sjá notendur skipta úr sinni hugbúnaðarlausn yfir í svipaðar lausnir sem byggja á opnum staðli. Þangað til halda þeir notendum sínum læstum inni í sinni lausn þar til notendur komast yfir sameiginlega skiptikostnaðinn.









Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica