Opinberar stofnanir
Tengsl opinna staðla við stefnur stjórnvalda
Stefna stjórnvalda um frjálsan og opinn hugbúnað kom út í mars 2008. Stefnan, sem nær til allra ríkisstofnana og félaga sem rekin eru fyrir opinbert fé, er í fimm liðum sem miða að því að gera frjálsum og opnum hugbúnaði jafnhátt undir höfði og séreignarhugbúnaði.
Staðlar
Í stefnu stjórnvalda um frjálsan og opinn hugbúnað segir í 2. lið, sem fjallar um staðlamál, að opinberir aðilar skuli reyna að velja hugbúnað sem byggir á opnum stöðlum. Ein af höfuðástæðum þess er að auknar kröfur eru settar á ríkið varðandi þjónustu við almenning og aðra lögaðila í landinu. Það má því segja að opnir staðlar séu mikilvægir vegna þess að þeir auka samskiptahæfni við annan hugbúnað sem almenningur eða aðrir aðilar notast við.
Núverandi stefna stjórnvalda í upplýsingatækni, Netríkið Ísland, er samsett úr 10 liðum sem skipt er í flokkana þjónusta, skilvirkni og framþróun. Framtíðarsýn stjórnvalda er sú að Íslendingar verði fremstir þjóða í rafrænni þjónustu og nýtingu upplýsingatækni í opinberri stjórnsýslu.
Þjónusta
Íslendingum verður veittur möguleiki á því að nota Netið til þess að nálgast alla opinbera þjónustu og sínar eigin persónulegu upplýsingar sem eru í vörslu opinberra aðila. Opinberir aðilar verða að geta tryggt að allir hafi aðgengi að þjónustunni óháð stýrikerfum og hugbúnaði. Með því að notast við opna staðla er öllum hugbúnaðarframleiðendum gefinn jafn möguleiki á því að útfærastaðalinn og styðja við þjónustu opinberu aðilanna. Ef alþjóðlegur og virtur staðall er valinn er möguleiki á því að margar lausnir séu nú þegar til sem styðja staðalinn og þar af leiðandi þjónustuna.
Skilvirkni
Stefnan segir beinlínis varðandi skilvirkni að stöðlun sé lykilatriði í því að ná fram samræmdu heildarskipulagi sem allar opinberar stofnanir geta starfað í. Með notkun opinna staðla geta allar stofnanir, litlar sem stórar unnið saman á samræmdan hátt í skilvirku netríki. Gögn geta þannig ferðast á milli stofnanna frekar en fólk sem er eitt af markmiðum stefnunnar.
Framþróun
Rannsóknir, menntun, góð samskipti og lýðræði stuðla að bættri samkeppnishæfni Íslands. Með notkun opinna staðla er hægt að útbúa sameiginlegan grunn sem stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar geta í sameiningu unnið að og starfað út frá. Með sameiginlegu átaki í sköpun opins og staðlaðs rannsóknarvettvangs getur íslenskt atvinnulíf tekið stórt stökk fram á við og skarað framúr á alþjóðavísu.

