Umfjöllun
Opnir staðlar í öðrum löndum
Þótt formleg skilgreining á opnum stöðlum sé ekki fyrir hendi virðast stjórnvöld margra landa sammælast um að opnir staðlar, það er gjaldfrjálsir og aðgengilegir staðlar, séu nauðsynlegir til þess að skapa samkeppnishæfan markað og auðvelda samvinnu milli stjórnvalda, bæði innanlands og milli landa. Hópur um opnar og rafrænar stefnur (e.Open ePolicy Group) bendir á erfiðleika í samskiptum sem áttu sér stað í kringum flóðbylgjuna í Taílandi 2004 og fellibylinn Katrínu 2005. Innanríkisráðherra Suður-Afríku, Nosiviwe Mapisa-Nqakula, sagði í ræðu á 2. alþjóðlegri ráðstefnu um opna skjalaskráarsniðið ODF, að opnir staðlar séu nauðsynlegir lýðræði og hefur því ákveðið að styðja við ODF sem staðal fyrir skrifstofuskjöl.
Evrópusambandið hvetur aðildarlönd til þess að styðja við opna staðla til þess að auka samstarfsmöguleika innan sem utan Evrópu. Bretar hafa til dæmis í stefnu sinni tengdri ramma um samvirkni í rafrænni stjórnsýslu (e. e-GovernmentInteroperability Framework) hvatt til notkunar á opnum stöðlum. Frakkar hafa skilgreint opna staðla í lögum um traust í stafrænum viðskiptum og Spánverjar í lögum um rafrænan aðgang þegna að opinberri þjónustu.
Í framhaldi af ISO stöðlun skrifstofuskráarsniðsins Office Open XML (OOXML) árið 2008, þar sem meðal annars komst upp um misnotkun á kosningaferlinu í Svíþjóð, hafa mörg lönd ákveðið að lýsa yfir stuðningi við Open Document Format (ODF) staðalinn sem var gerður að ISO staðli árið 2006. Hollendingar hafa sagt að þeir ætli sér ekki að nota OOXML staðalinn og ætla frekar að nota ODF og PDF. Króatía og Svíþjóð hafa gert ODF að landsstaðli ásamt öðrum þjóðum. Upplýsingatækniráðuneyti Noregs hefur mælt með ODF og PDF sem skrársniðum í skrifstofustarfi opinberra stofnanna. Áætlanir um notkun OpenOffice.org eins og í tilraunaverkefni Finna í Dómsmálaráðuneytinu fela í sér notkun ODF skráarsniðsins.

