• Smári Kristinsson - framkvæmdastjóri Rafarnarins ehf. í Reykjavík

Risastökk inn í framtíðina

UT-blaðið 24 .janúar 2006

Risastökk inn í framtíðina

„Stafræn myndgreining er risastökk inn í framtíðina í heilbrigðisþjónustu og varðar bæði tækni og ekki síður stjórnun og rekstur,“ segir Smári Kristinsson, framkvæmdastjóri Rafarnarins ehf. í Reykjavík. Fyrirtæki hans er eitt hið stærst einkarekna á sínu sviði í norðanverðri Evrópu og gefur ráð varðandi skipulag og innleiðingu tæknibúnaðar myndgreiningardeilda auk þess að veita tækniþjónustu og hugbúnaðarlausnir fyrir gæðastjórnun.

Raförninn hefur annast verkefnisstjórn við umfangsmiklar tæknibreytingarnar hjá Röntgen Domus en jafnframt verið ráðgjafi varðandi stafræna myndgreiningu hjá Hjartavernd, Röntgen Orkuhúsinu, Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) og fleiri heilbrigðisstofnunum. Þar má nefna umfangsmiklar sérlausnir til vinnslu á segluómheilamyndum fyrir Hjartavernd og  uppsetningu á búnaði til fjargreininga röntgenmynda  sem sendar eru til Röntgen Domus frá Heilbrigðisstofnuninni Blönduósi og til FSA frá Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað,  Heilsugæslustöðinni á Egilsstöðum og Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki.

Útrásarmöguleikar í heilbrigðisþjónustu

Raförninn hefur lengi starfað í alþjóðlegu umhverfi og miðlað þekkingu sinni og reynslu með þjónustu við viðskiptavini erlendis. Í nóvember 2005 höfðu sérfræðingar fyrirtækisins til dæmis yfirumsjón með uppsetningu stafræns myndgreiningarkerfis hjá Riverdale Radiology, einkarekinni röntgendeild í jaðri Washingtonborgar í Bandaríkjunum. Hluti verkefnisins var að fjartengja deildina við fyrirtæki á Indlandi sem sérhæfir sig í greiningu röntgenmynda. Stjórnendur Riverdale stefna að því að kaupa greiningarþjónustu röntgenmynda sinna á Indlandi og Smári er sannfærður um að íslensk fyrirtæki eigi líka að horfa til slíks alþjóðslegs samstarfs og viðskipta. Stafræna tæknin opni beinlínis nýjar og spennandi leiðir fyrir útrás á þessu sviði heilbrigðisþjónustu. Þannig geti íslenskir röntgenlæknar setið við tölvuskjái sína og greint myndir sem berast þeim hvaðaðæva að úr veröldinni. Á sama hátt séu  að sjálfsögðu engin tæknileg vandkvæði á því að kalla eftir greiningu eða áliti erlendis á röntgenmyndum sem teknar séu á Íslandi.









Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica