Rafrænar lyfjaupplýsingar
UT-blaðið 24 .janúar 2006
Eftir Benedikt Benediktsson, verkefnastjóra í heilbrigðisráðuneytinu.
Flestir þekkja lyfseðla og hafa handleikið þá en færri þekkja hina löngu leið sem upplýsingar á lyfseðlinum eiga fyrir höndum. Leiðin er í stuttu máli sú að læknir skrifar seðilinn og afhendir sjúklingi sem síðan afhendir seðilinn í apóteki til að fá viðeigandi lyf afhent. Seðillinn fer síðan frá apótekinu til Tryggingastofnunar (TR) vegna greiðslu á hluta TR í kostnaði við lyfin. Fjöldi lyfseðla er hátt í 2 milljónir á ári að jafnaði og því er eftir miklu að slægjast með því að gera þetta ferli skilvirkara og koma samskiptunum á rafrænt form, auk þess sem aukið öryggi í allri meðhöndlun er mjög mikilvægt.
Fyrsti áfangi voru pappírslausar sendingar lyfseðla milli apóteka og TR fyrir um 5 árum. Þá dró verulega úr pappírsvinnu. Annar áfangi var þegar lyfjagagnagrunnur var tekinn í notkun á nýliðnu ári. . Lyfjagagnagrunnurinn er tvíþættur, þar sem TR hefur gögn til fjárhagslegs eftirlits með útgefnum lyfseðlum og Landlæknisembættið hefur gögn til eftirlits með lyfjanotkun í landinu almennt og sér í lagi með notkun ávanabindandi lyfja.
Lyfseðlar sendir rafrænt
Undanfarin 2 ár hefur staðið yfir tilraunaverkefni á Akureyri með sendingar lyfseðla frá læknum til apóteka. Þetta gefur góða raun og því hefur verið ákveðið að innleiða fyrirkomulagið á landsvísu. Læknar á heilsugæslustöðvum munu ríða á vaðið en síðan er ætlunin að aðrir læknar geti einnig hafið rafrænar sendingar lyfseðla. Fyrirkomulagið verður þannig að sjúklingur getur beðið lækni um að senda lyfseðilinn í ákveðið apótek svo lyfin verði tilbúin til afhendingar þegar hann kemur þangað. Einnig er mögulegt að láta lyfseðilinn bíða í ákveðnu pósthólfi (lyfseðlagátt) og hvaða apótek sem er getur sótt hann þangað að beiðni sjúklings.
Ávinningurinn í því ferli sem byggt hefur verið upp er fyrst og fremst fólginn í vinnusparnaði og öryggi í allri meðhöndlun lyfseðla. Stærsti ávinningurinn fæst hins vegar með lokaáfanganum sem felst í því að byggja upp lyfjayfirlit sjúklings (medicinprofil) sem geymir allar lyfjaávísanir sjúklings. Hafi læknir, sem skrifar lyfseðil, möguleika á aðgangi að þess háttar yfirliti má koma í veg fyrir stóran hluta þeirra óhappa sem verða við lyfjagjöf. Óhöpp geta gerst t.d. þegar sjúklingar taka lyf sem ekki er heppilegt að tekin séu saman og geta jafnvel verið lífshættuleg eða taka sama lyfið tvisvar vegna ávísana á mismunandi heiti sama lyfs. Stefnt er að því að koma upp lyfjayfirliti sjúklings á allra næstu árum.
Mikilvægi persónuverndar verður aldrei ítrekað of oft og þar sem lyfseðlar hafa að geyma viðkvæmar persónuupplýsingar er jafnan leitast við að tryggja öryggi við rafræna umsýslu lyfseðla eins og frekast er unnt.

