• Bergþór Ólason, aðstoðarmaður samgönguráðherra

Fjarskiptasjóður til framfara

UT-blaðið 24 .janúar 2006

Eftir Bergþór Ólason, aðstoðarmann samgönguráðherra

Fyrir áramót samþykkti Alþingi lög um fjarskiptasjóð sem ætlað er að styðja við uppbyggingu fjarskiptakerfa á svæðum þar sem fjarskiptafyrirtæki hafa ekki treyst sér í uppbyggingu á markaðslegum forsendum.

Í sjóðinn verða lagðir 2,5 milljarðar króna af söluandvirði Símans og verður þeim fjármunum varið til að bæta fjarskiptakerfin um landið allt. Á árinu 2006 verður varið einum milljarði króna til uppbyggingar og síðan verða 500 milljónir króna lagðar í sjóðinn árlega 2007-2009.

Sjóðnum er ætlað að styðja við uppbyggingu á sviði fjarskipta í samræmi við gildandi fjarskiptaáætlun en þar er að finna skilgreiningar á aðkomu og markmiðum stjórnvalda á þessu sviði.

Meginmarkmiðin sem ætlunin er að ná er

  • stóraukin uppbygging senda fyrir GSM-farsímakerfið á hringveginum, helstu stofnvegum og á fjölsóttum ferðamannastöðum.  
  • dreifing stafræns sjónvarps um gervihnött með bætta þjónustu fyrir sjófarendur að leiðarljósi. 
  • uppbygging á háhraðatengingum á landsvæðum þar sem fjarskiptafyrirtækin hafa ekki treyst sér til að byggja upp þjónustu á markaðslegum forsendum.

Fjarskiptasjóður mun bjóða út skýrt skilgreinda þjónustu á afmörkuðum svæðum með það fyrir augum að fjarskiptafyrirtækin veiti sem besta þjónustu með sem lægstum tilkostnaði.

Áætlað er að á árinu 2006 verði megináherslan á stuðning við uppbyggingu GSM-farsímakerfa á hringveginum og meginstofnvegum ásamt fjölsóttum ferðamannastöðum, ásamt því að koma sendingum á stafrænu sjónvarpi um gervihnött til sjófarenda.

Með stofnun Fjarskiptasjóðs er orðið til tæki til að styðja við fjarskiptauppbyggingu á þeim svæðum sem sú þjónusta hefur verið slökust á.  Náist markmið fjarskiptaáætlunar 2005-2010 fram að ganga með stuðningi Fjarskiptasjóðs verður Ísland í fremstu röð í fjarskiptamálum í heiminum.









Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica