Ísland.is – þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga
UT-blaðið 24 .janúar 2006
Eftir Fjólu Agnarsdóttur, hagfræðing og verkefnisstjóra Ísland.is, og Höllu Björg Baldursdóttur tölvunarfræðing og verkefnisstjóra í rafrænni stjórnsýslu. Höfundar starfa í forsætisráðuneytinu.
Hafinn er undirbúningur að þjónustuveitu á Netinu fyrir almenning sem hefur það að markmiði að þar megi í framtíðinni nálgast á einum stað alla þjónustu ríkis og sveitarfélaga. Þjónustuveitan mun fá netfangið http://www.island.is og stefnt er að því að opna fyrsta áfanga hennar haustið 2006.
Þegar Ísland.is kemur til sögunnar verður ekki lengur vera þörf á að vita fyrir fram hver í opinberri stjórnsýslu beri ábyrgð á eða veiti upplýsingar eða þjónustu sem sóst er eftir hverju sinni. Ganga má að öllu vísu á einum stað og fá leiðsögn um íslenska stjórnkerfið.
Aðgengi fólks að upplýsingum og þjónustu batnar og ætlunin er að auka til muna möguleika á sjálfsafgreiðslu á Netinu til að spara fólki og fyrirtækjum tíma og fjármuni. Með aukinni sjálfvirkni má einnig búast við hraðari þjónustu og minni líkum á villum auk þess sem sjálfvirknin kann að skapa forsendur til að hagræða frekar í rekstri hjá ríki og sveitarfélögum.
Þjónustuveitan er samstarfsverkefni ríkisstofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga og jafnframt eitt stærsta verkefnið sem sett hefur verið á laggir í samræmi við þá stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið 2004-2007.
Hugmyndin er að hafa þrjá skyggða ramma á síðunni, einn fyrir hvern flokk hér fyrir neðan:
Hvað er Ísland.is?
- Ísland.is er upplýsinga og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga á Netinu
- Ísland.is er vettvangur sem leggur áherslu á aukna þjónustu við borgara landsins
- Ísland.is býður upp á sjálfsafgreiðslu og einstaklingsmiðaða þjónustu
- Ísland.is er óháð stofnanaskipulagi
- Ísland.is brúar bilið milli borgarans og hins opinbera
Hverjir eru helstu kostir við Ísland.is?
- auðveldara að finna upplýsingar og þjónustu
- hraðvirkari og öruggari afgreiðsla
- ekki þarf að endurtaka upplýsingar sem þegar eru fyrir hendi hjá opinberum aðilum
- ekki þarf að fylla út langar umsóknir og hlaupa á milli staða
- hægt er að senda umsóknir beint í gegnum Netið
- opið allan sólarhringinn, engar biðraðir
- auknir möguleikar til þátttöku í lýðræðislegum ákvörðunum
Hvers konar þjónusta verður í boði á Ísland.is?
Flokkaðar upplýsingar, til dæmis:
- Fjölskylda og heimili
- Heilsa og heilbrigðismál
- Menntun
- Menning og tómstundir
- Fjármál
- Neytendamál
- Lög og réttur
- Vinnumarkaður
- Umhverfismál
- Samgöngur og ferðalög
- Ísland og umheimurinn
- Atvinnulíf
Sjálfsafgreiðsla, til dæmis:
- Umsóknir um leyfi og skírteini
- Umsóknir um vottorð
- Umsóknir um greiðslur
- Tilkynningar um breytingar á högum einstaklinga og fyrirtækja
- Skil á gögnum

