Frá skrifræði til rafrænnar sjálfsafgreiðslu
UT-blaðið 24 .janúar 2006
Eftir Gunnar Salvarsson, forstöðumann kynningarmála Tryggingastofnunar
Fimmtíu þúsund Íslendingar fengu í hendur evrópskt sjúkratryggingakort á fimm mánaða tímabili síðastliðið sumar. Langflestir korthafanna, 80%, fengu kortin í hendur eftir að hafa sótt um þau rafrænt á heimasíðu Tryggingastofnunar (TR). Að mati TR er útgáfa evrópsku kortanna gott dæmi um árangursríka rafræna þjónustu opinberrar stofnunar.
Evrópsku sjúkratryggingakortin komu út hér á landi 1. maí 2005 og leystu af hólmi pappírsvottorðið E-111. Þau tryggja Evrópubúum læknisaðstoð utan heimalands á sama verði og íbúum dvalarlandsins ef þeir slasast eða veikjast skyndilega á ferðalagi. Þau eru jafnframt gefin út í þeim tilgangi að minnka skrifræði.
Allt frá upphafi var ákveðið innan TR að freista þess að búa þannig um hnúta að framkvæmdin við útgáfu kortanna hér á landi yrði rafræn. Lögð var áhersla á sjálfsafgreiðslu á heimasíðu með eins einföldum hætti og kostur væri. Ákveðið var að á umsóknarsíðunni þyrfti aðeins að slá inn eina kennitölu og haka síðan í reiti fyrir maka og börn ef um fjölskyldur væri að ræða. Þannig gæti til dæmis fjöldskylda, hjón með fjögur börn, slegið inn eina kennitölu og hakað í viðkomandi reiti og fengið sex kort í hendur tveimur dögum síðar inn um bréfalúgu heimilisins.
Í ljós kom að fjórðungur vefumsókna fór til fjölskyldna en að jafnaði voru send tvö sjúkratryggingakort fyrir hverja eina umsókn. Skrifræðinu var gefið langt nef!
Önnur rafræn þjónusta sem TR áformar að taka upp árið 2006 er sjálfvirk útgáfa á afsláttarkortum vegna heilbrigðisþjónustu. Núna hefur fólk rétt á að sækja um afsláttarkort þegar útgjöld vegna tiltekinnar heilbrigðisþjónustu eru komin yfir ákveðin mörk en getur síðar á árinu vænst þess að fá slík kort heim í pósti óumbeðið þegar réttindi hafa stofnast á grundvelli þeirra upplýsinga sem TR hefur undir höndum, sem þó eru ekki tæmandi. Á síðasta ári fengu um 50.000 Íslendingar afsláttarkort í hendur eftir að hafa framvísað kvittunum eða sent þær í pósti til TR. Til marks um fyrirhöfn vegna afsláttarkortanna má nefna að 250 til 300 einstaklingar koma að jafnaði daglega í þjónustumiðstöð TR til að sækja um afsláttarkort eða fá endurgreidda tannlæknareikninga.
Með því að koma þessari þjónustu í rafrænan búning vinnst enn einn sigurinn á skrifræðinu. Almenningur nýtur augljóslega mikils hagræðis af þessari breytingu og rekstrarleg hagkvæmni fyrir ríkið blasir líka við.
Bætt aðgengi að upplýsingum
Nú standa yfir endurbætur á heimasíðu TR í nýju vefumsjónarkerfi. TR telur að öflug heimasíða sé grunnur að frekari rafrænni þjónustu við viðskiptavini sína. Markmiðið með endurbótunum er m.a. að endurskipuleggja heimasíðuna með þarfir viðskiptavina að leiðarljósi og bæta aðgengismál til muna, svo sem fyrir sjónskertra og aðra hópa sem hafa sérþarfir. Einnig verður áhersla lögð á öfluga leitarvél. Enginn ber brigður á að regluverk almannatrygginga er mikill frumskógur og efnið á heimasíðu TR endurspeglar þá staðreynd. Þegar einstaklingar lenda í aðstæðum í lífinu sem kalla á sérhæfðar upplýsingar um rétt þeirra í almannatryggingakerfinu er mikilvægt að finna þær upplýsingar. Fundvís leitarvél og vel skipulögð heimasíða er lykillinn að árangri í þeirri leit.
Nú þegar er á heimasíðu TR reiknivél sem kallast “Reiknhildur” en um er að ræða
netreiknivél til aðstoðar lífeyrisþegum og foreldrum í fæðingarorlofi við útreikning á hugsanlegum greiðslum, að gefnum ákveðnum upplýsingum. Reiknivélin er gott dæmi um rafræna þjónustu sem þegar er fyrir hendi á heimasíðu TR og er mikið notuð.
Margvísleg rafræn samskipti við heilbrigðisstéttir
Fjölmargt hefur áunnist á síðustu árum í rafrænum samskiptum TR við heilbrigðisstéttir. Sjúkraþjálfarar senda flestir hverjir reikninga sína rafrænt til TR í gegnum vefinn. Þeir geta einnig gert gagnvirkar rafrænar fyrirspurnir til TR um stöðu sjúklinga sem þeir nýta svo til þess að reikna út greiðsluhluta þeirra. Til stendur á þessu ári að sérfræðilæknar geti einnig sent inn reikninga sína rafrænt í gegnum vefinn. Þá er í gangi tilraunaverkefni þar sem verktakalæknar geta skráð örorkumöt slysa rafrænt á vefnum og sent til TR á öruggan máta.
Mikil umskipti hafa orðið á skömmum tíma í lyfjamálum með lyfjaeftirlitskerfi TR, tölfræðigrunni lyfja og rafrænum lyfseðlum. TR tók á móti rúmlega 1.9 milljónum rafrænum lyfseðlum frá lyfsölum árið 2005. Upplýsingar um lyfseðlana er uppistaðan í nýjum lyfjagagnagrunni sem var tekinn í gagnið á síðasta ári. TR sér um rekstur, hýsingu og viðhald grunnsins en landlæknir er ábyrgðaraðili hans. Lyfjagrunnurinn nýtist landlækni og Lyfjastofnun sem eftirlitstæki, t.d. varðandi misnotkun á ávísunum lækna á ávanabindandi lyfjum.
Aukin rafræn þjónusta
Samkvæmt stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið 2004-2007 á að koma á rafrænum viðskiptum milli TR og heilbrigðisstétta, og rafrænum samskiptum milli TR og almennings. Þótt TR bjóði nú þegar almenningi og heilbrigðisstéttum ýmiss konar rafræna þjónustu er ætlunin að gera enn betur og því mun TR leggja mikla áherslu á uppbyggingu rafrænnar þjónustu á næstu árum, enda verði stofnuninni tryggt nægjanlegt fjármagn til verksins. Rafræn stjórnsýsla býður upp á mörg tækifæri til þess að bæta aðgengi að þjónustu og auka gæði hennar. Mikill áhugi og vilji er fyrir því hjá TR að þróa rafrænar leiðir sem skila árangri fyrir viðskiptavini, heilbrigðisstéttir og almannatryggingakerfið.
Markvisst er unnið að því að draga úr skrifræði og taka í vaxandi mæli upp rafræna þjónustu. Starfsemi TR er þó þess eðlis að samhliða því þarf að gæta þess að þjónusta við þá sem ekki geta notfært sér rafræna þjónustu verði ekki skert.

