Fjölbreytt umhverfisfræðsla á Heiminum mínum
UT-blaðið 24 .janúar 2006
Eftir Albert Svan Sigurðsson, M. Sc., Sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun
„Heimurinn minn“ er fræðsluvefur um umhverfismál fyrir börn og unglinga með yfir 200 síður af fróðleik um umhverfismál. Þar er fjöldi ljósmynda, teiknaðra mynda, hljóða, myndbanda og verkefna í formi hermileikja. Allt fræðsluefnið er upplesið. Vefurinn er aðallega ætlaður til notkunar í grunnskólum þó allir geti nýtt sér hannhvenær sem er með því að fara á www.heimurinn.is.
Í aðalnámskrá grunnskóla er lögð áhersla á umhverfismennt sem mikilvægan þráð í skólastarfi og kennslu ólíkra námsgreina frá upphafi skólagöngunnar. „Heimurinn minn“ á að vekja börn og unglinga til umhugsunar um umhverfismál, fræða þau og hafa áhrif á viðhorf þeirra til umhverfismála. Vefurinn fræðir börnin um hið sívirka og viðkvæma samspil manns og náttúru, auk hlutverks þeirra sem neytenda og þátttakenda í nútímasamfélagi.
Umhverfisfræðslan er fjölbreytt. Á Vefnum má meðal annars finna fróðleik um náttúruvernd, innkaup og umbúðir, orkusparnað, notkun bifreiða, lífræna ræktun, gróðurhúsaáhrif, mengun sjávar, skipulag, úrgang, vatnsvernd, landgræðslu, skipulag og sjálfbæra þróun.
Efninu er skipt í þrjú aldursstig, yngsta stig, miðstig og efsta stig. Reynt er að hafa framsetningu efnisins grípandi og spennandi með því að flétta saman fræðslu og leik. Viðamikill fróðleiksbanki fylgir vefnum þar sem um 200 hugtök tengd umhverfismálum eru útskýrð.
„Heimurinn minn“ er samstarfsverkefni Umhverfisstofnunar og Námsgagnastofnunar, sem styrkt var með fjárframlagi frá Upplýsingasamfélaginu. Námsgagnastofnun er sú stofnun sem gegnir veigamestu hlutverki í gerð og dreifingu námsefnis til íslenskra skólabarna. Umhverfisstofnun hefur það hlutverk að framfylgja lögum um umhverfismál. Auglýsingastofan Næst ehf. sá um hönnun vefsins í samráði við stofnanirnar. Höfundar efnis eru Margrét Júlia Rafnsdóttir, Sigrún Helgadóttir, Björn Valdimarsson og Albert S. Sigurðsson. Fyrrgreindar stofnanir munu sjá um uppfærslu og viðhald vefjarins ásamt frekari þróun á efninu.
Fimmtudaginn 26. janúar verður fræðslufundur um „Heiminn minn” í Námsgagnastofnun, Laugavegi 166, 2. hæð, kl. 15.00. Margrét Júlía Rafnsdóttir, einn af höfundum vefsins, kynnir hann. Allir eru velkomnir og áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig á netfangið upplysingar@nams.is.
