Miðlæg bólusetningaskrá

UT-blaðið 24 .janúar 2006

Eftir Þórólfur Guðnason, yfirlæknir sóttvarnasviðs landlæknisembættisins

Sóttvarnarlæknir undirritaði samning við eMR (nú TM Software) í mars 2004 um tilraunaverkefni er kvað á um rafræna söfnun upplýsinga um bólusetningar í miðlæga skrá. Verkefnið var styrkt af heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti og í því tóku þátt Heilsugæslan í Reykjavík, Heilsugæslustöðin á Akureyri og heilbrigðisstofnanir Þingeyinga og á Sauðárkróki. Verkefninu lauk formlega í júní 2005 og er óhætt að segja að skráin uppfyllir allar þær væntingar og öryggiskröfur sem til hennar eru gerðar.

Verkefni um bólusetningaskrá sóttvarnalæknis hefur vakið verðskuldaða athygli meðal annars vegna þess að þar opnast möguleikar til að safna öðrum mikilvægum heilbrigðisupplýsingum í miðlægar skrár. Bólusetningaverkefni sóttvarnalæknis hlaut verðlaun Icepro samtakanna í febrúar 2005 sem athyglisverðasta verkefni um rafræn samskipti á árinu. Á næstu misserum er áformað af hálfu hins opinbera að tengja allar heilbrigðisstofnanir á Íslandi við bólusetningagrunn sóttvarnalæknis. Því verkefni verður vonandi lokið innan eins til tveggja ára.

Margþætt gagnsemi

Alþjóða heilbrigðismálastofnunin telur ungbarnabólusetningar vera arðbærustu, fyrirbyggjandi aðgerðir í heilbrigðismálum. Á Íslandi hefur tekist með bólusetningum að koma í veg fyrir margar alvarlegar sýkingar, þökk sé framsýni heilbrigðisyfirvalda og þátttöku almennings.

Samkvæmt lögum er sóttvarnalækni skylt að halda skrá um allar bólusetningar á Íslandi en fram til þessa hafa upplýsingar um bólusetningar einungis verið tiltækar á heilsugæslustöðvum og með sölutölum á landsvísu.

  • Mikill áhugi hefur verið fyrir því hér landi að safna upplýsingum um bólusetningar í eina skrá. Gagnsemi slíkrar skráningar er ótvíræð einkum fyrir eftirtalda aðila:
  • Almenningur. Í miðlægri skrá geta einstaklingar nálgast upplýsingar um allar fyrri bólusetningar sínar án tillits til hvar þær voru gerðar.
  • Heilbrigðisstofnanir. Heilbrigðisstarfsmenn munu á auðveldan hátt geta fengið upplýsingar um fyrri bólusetningar einstaklinga sem til þeirra leita.
  • Sóttvarnalæknir. Skráin mun auðvelda sóttvarnalækni að fylgjast með árangri bólusetninga og meta hættuna á því að ýmsir sjúkdómar sem bólusett er gegn geti blossð upp. Hún mun einnig auðvelda eftirlit með hugsanlegum aukaverkunum bólusetninga.
  • Heilbrigðisyfirvöld. Miðlæg skrá mun hjálpa yfirvöldum að grípa til ýmissa samræmdra aðgerða í heilbrigðismálum og bætir nýtingu fjármuna.








Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica