Rafræn sjúkraskrá og heilbrigðisnet

UT-blaðið 24 .janúar 2006

Eftir Benedikt Benediktsson, verkefnisstjóra heilbrigðisráðuneytinu

Rafræn skráning heilsufarsupplýsinga eða rafræn sjúkraskrá á rætur að rekja til upphafs tölvuvæðingar þegar byrjað var að útbúa kerfi til að halda sjúkraskrár á stofnunum. Kröfur nútímans eru aðrar og meiri en þá var. Með rafrænni sjúkraskrá er gjarnan átt við aðgengi að upplýsingum um sjúklinginn á þeim stað sem hann er meðhöndlaður án tillits til þess hvar upplýsingarnar voru skráðar.

Heilbrigðisnet er hugtak sem byrjað var að tala um á Íslandi fyrir miðjan síðasta áratug. Það er farvegur hinna rafrænu upplýsinga, hvort sem um er að ræða kóðuð gögn á skeytaformi, röntgenmyndir, lifandi myndir eða aðrar upplýsingar. Í byrjun sáu menn fyrir sér skurðgröfur fara um landið og leggja strengi en sú heimsmynd er breytt og nú er horft til notkunar Internetsins vegna flestra þátta þessara samskipta með þróun í öryggisbúnaði og aukinni bandbreidd.

Á vegum heilbrigðisráðuneytisins hafa á undanförnum árum verið unnin fjölmörg tilrauna- og þróunarverkefni sem liður í undirbúningi að uppbyggingu heilbrigðisnets. Öryggismál hafa þar skipað stóran sess en einnig má nefna tilraunir með fjarlækningar, rafræna lyfseðla, rafræn læknabréf, miðlæga bólusetningaskrá, rafræna reikninga til Tryggingastofnunar ríkisins (TR), þjónustugátt TR og svo mætti lengi telja. Eitt af öðru verða þessar hugmyndir að veruleika og má þar nefna þjónustugátt TR, miðlæga bólusetningaskrá og rafræna lyfseðla, sem fjallað er um annars staðar í blaðinu.

Hvað rafræna sjúkraskrá varðar má segja að heilsugæslan í landinu sé ágætlega sett. Allar líkur eru á að samskipti heilbrigðisstofnana með upplýsingar fari vaxandi á næstu misserum. Með sameiningu stofnana, til dæmis á á Austurlandi og Suðurlandi, er jafnframt aukin áhersla lögð á sameiningu kerfa þessara nýju stofnana. Uppbygging sjúkraskrárkerfa á sjúkrahúsum, sérstaklega þeim stærri, er bæði flókin og dýr. Það er hins vegar mjög mikilvægt, ekki síst í tengslum við væntanlegt, nýtt hátæknisjúkrahús, að byggja upp öfluga innviði á sviði upplýsingatækni. Í því samhengi má heldur ekki gleyma því að sjúkrahúsið þarf að tengjast öðrum stofnunum, enda eykst samvinna stofnana stöðugt.

Skil heilbrigðisnets og rafrænnar sjúkraskrár eru ógreinilegri en á árum áður og nú er gjarnan talað um eHealth eða rafræna heilbrigðisþjónustu. Þannig er vaxandi áhersla lögð á aðgengi heilbrigðisstarfsfólks að upplýsingum um sjúklinginn  sem verið er að meðhöndla, án tillits til þess hvar upplýsingarnar voru skráðar. Þarna tvinnast saman rafræn sjúkraskrá og heilbrigðisnet.

Ljóst er að nauðsynleg uppbygging er afar dýr. Hins vegar hefur verið sýnt fram á í fjölmörgum rannsóknum að með öflugri uppbyggingu á sviði rafrænnar heilbrigðisþjónustu má ná fram umtalsverðum fjárhagslegum ávinningi. Umfram allt er það þó aukið öryggi í meðhöndlun sjúklinga og þar með aukin gæði þjónustunnar sem skiptir mestu máli.









Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica