• Mynd: Kortaskjár Landmælinga Íslands

Kortaskjáir Landmælinga Íslands

UT-blaðið 24 .janúar 2006

Eftir Gunnar H. Kristinsson, sölustjóra Landmælinga Íslands

Eitt af lykilhlutverkum Landmælinga Íslands er að miðla upplýsingum um Ísland til almennings. Á undanförnum árum hefur stofnunin aukið hagnýtar upplýsingar á vef sínum, www.lmi.is, og meðal annars boðið upp á Kortaskjá þar sem hægt hefur verið að skoða kort í mælikvörðunum 1:100 000 og 1:750 000. Þessi þjónusta mælist vel fyrir og var vefur LMÍ meðal þeirra bestu í úttekt á vefjum ríkis og sveitarfélaga hvað varðar nytsemi.

Nýverið opnaði stofnunin nýja útgáfu af Kortaskjánum með öllum Atlaskortum í mælikvarðanum 1:100 000 auk stafræns korts sem byggt er á IS 500V kortagrunninum, svokölluðum LUK-grunni þar sem hægt er að kveikja og slökkva á ákveðnum lögum og fá upplýsingar um þau gögn sem liggja á bak við hvert fyrirbæri. Þannig er t.d. hægt að sjá íbúaþróun þéttbýlisstaða eða vegnúmer vegakerfisins. Skemmtileg nýjung í kortaskjánum er örnefnaleit með um 43.000 örnefnum sem allir notendur venjulegas vefhugbúnaðar geta leitað í. Slíkt hefur ekki verið mögulegt áður. Örnefnaleit er einnig byggð þannig upp að aðrir notendur LUK-kerfa geta nú þegar hana kerfum sínum og þjónustu og hafa því ávallt aðgang að uppfærðum örnefnagrunni án þess að þurfa að reka hann sjálfir.

Myndaskjár

Mynd: Myndaskjár Landmælinga ÍslandsÞessa dagana er verið að opna nýjan Myndaskjá Landmælinga Íslands en þar mun stofnunin birta loftmyndir og gervitunglamyndir af Íslandi.  Í fyrstu verður hægt að skoða Landsat gervitunglamyndir með 30 metra greinihæfni, Spot-5 gervitunglamyndir með 10 og 2,5 metra greinihæfni, og svo loftmyndir úr myndasafni stofnunarinnar, sem í eru um 140.000 myndir teknar 1937-2000.  Einnig verður hægt að hlaða einfölduðum útgáfum af loftmyndunum inn á tölvur notenda kjósi þeir það.

Miklar breytingar eru væntanlegar á starfsemi Landmælinga Íslands á næstu misserum.  Í því breytta umhverfi mun stofnunin í auknum mæli nýta sér Vefinn til að miðla landfræðilegum gögnum af Íslandi.  Kortaskjár og Myndaskjár eru fyrstu skrefin á þeirri leið en uppbygging þeirra er á þann veg að auðvelt er að bæta þar inn nýjum kortum eða myndum.  Landmælingar Íslands munu því áfram vísa veginn í landupplýsingum á Íslandi.









Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica