• Þorsteinn Helgi Steinarsson - ráðgjafi dóms- og kirkjumálaráðuneytis

Átak í upplýsinga- og fjarskiptatækni

UT-blaðið 24 .janúar 2006

Eftir Þorstein Helga Steinarsson, Verkfræðiþjónustunni Ásverki, ráðgjafa dóms- og kirkjumálaráðuneytis og framkvæmdastjóra Átaks í upplýsinga- og fjarskiptatækni

Af hverju get ég ekki afgreitt mig sjálfur með opinber mál heima í stofu eins og með bankaviðskipti?

Þótt hinn almenni borgari eigi ekki oft erindi við stofnanir dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, verður að viðurkennast að þjónustan stenst sjaldnast kröfur nútíma Íslendinga sem vilja fá bestu mögulegu þjónustu á tíma sem þeim hentar. Það er ekki til marks um góða þjónustu að fara á marga staði til að útvega gögn til að afhenda öðrum en bankar og einstaka opinberir aðilar hafa sýnt fram á að hægt er að gera betur.

Árið 2004 var gerð úttekt á vegum ráðuneytisins sem sýndi að þrátt fyrir að verulegum fjárhæðum væri eytt í upplýsinga- og fjarskiptatækni nutu hvorki almenningur né starfsmenn betri þjónustu né hagræðingar.

Í október 2004 hrinti Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra af stað átaki til að bæta þjónustu við almenning og gera aðstöðu fyrir starfsmenn nútímalegri. Starfsemi tölvumiðstöðvar ráðuneytisins (TMD) var endurskipulögð og lögð voru drög að heilstæðri upplýsingatæknistefnu dómsmálaráðuneytisins. TMD sér um kerfisrekstur fyrir flestar stofnanir ráðuneytisins, um 40 talsins um allt land, en þar vega þyngst lögregla og sýslumenn. Gagnalínur víðnets TMD voru uppfærðar með ljósleiðaratengingum á höfuðborgarsvæðinu og stóraukinni bandvídd um allt land.

Í kjölfarið á breyttu skipulagi og uppfærðu víðneti hefur verið hrundið af stað ýmsum verkefnum sem skila sér þegar á þessu ári í betri þjónustu við almenning. Til dæmis stendur til að gera almenningi kleift að sækja um og greiða fyrir ýmis leyfi á netinu í stað þess að sækja þau í afgreiðslu lögreglu. Sama gildir um aðgengi erlendra ríkisborgara að þjónustu Útlendingastofnunar.

Stærsta einstaka verkefnið er nýtt vegabréfakerfi í samræmi við alþjóðlega staðla. Þjónustan verður bætt til muna með helmingi styttri afgreiðslutíma, pappírslausum umsóknum og afgreiðslu þar sem unnt er að gera allt á einum stað. Samhliða þessu færist öll umsýsla vegna vegabréfa frá Útlendingastofnun. Afgreiðsla vegabréfa í Reykjavík færist til lögreglunnar í Reykjavík en lögreglustjórar annars staðar sinna áfram umsýslu vegabréfa.

Á síðasta ári færðist útgáfa Lögbirtingarblaðsins og Stjórnartíðinda á Netið, sem  skilar umtalsverðum rekstarsparnaði. Aðgengi upplýsinga hefur jafnramt stórbatnað auk þess sem tækifæri gafst til að flytja útgáfu Lögbirtingablaðisns út á land.

Innviðir stofnana ráðuneytisins og starfsumhverfi starfsmanna hafa verið bætt m.a. með IP símaþjónustu, almennri málaskrá embætta og samræmdu þinglýsingakerfi.

Markmið okkar er að almenningur eigi þess kost að eiga samskipti við hið opinbera, hvort heldur er í upplýsingaleit eða beinum erindagerðum, heiman frá sér á Netinu. Markið er sett hátt og fleiri verkefni sem unnið er að bíða kynningar á þessu ári til hagsbóta fyrir almenning og ríkisþjónustuna.









Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica