Nýr öryggisvefur Póst- og fjarskiptastofnunar
UT-blaðið 24 .janúar 2006
Eftir Stefán Snorra Stefánsson á Póst- og fjarskiptastofnun
Póst- og fjarskiptastofnun hefur opnað nýjan vef um öryggi í tölvu- og netmálum á slóðinni www.netoryggi.is. Þar er að finna aðgengilegar upplýsingar fyrir almenning og lengra komna um örugga notkun tölva, sérstaklega þeirra sem eru nettengdar. Einnig er þar að finna margs konar annan fróðleik um net- og upplýsingaöryggi, svo sem góð ráð um val á lykilorði, um eldvarnarveggi og þráðlaus net.
Samfara síaukinni netumferð hefur margskonar ónæði og misnotkun gagna aukist, svo sem tölvuveirur, ruslpóstur, hnýsibúnaður (Spyware) og fleira. Nauðsynlegt er að stemma stigu við þessu með samstilltu átaki stjórnvalda, fyrirtækja og almennings. Mikilvægt er að almenningur og fyrirtæki geti treyst því að viðskipti á fjarskiptakerfum, t.d. á Internetinu, séu trygg og örugg. Alþingi hefur nú þegar samþykkt fjarskiptaáætlun 2005-2010. Þar kemur fram að öryggi Internetsins verði aukið þannig að almenningur geti á það treyst í viðskiptum og daglegu lífi. Þar er nánar tekið fram að leiðbeiningum verði miðlað til neytenda, svo og fræðsluefni um öryggismál, neytendavernd, persónuvernd og siðferðileg álitaefni sem tengjast sívaxandi notkun upplýsinga- og fjarskiptatækni. Ennfremur verður stofnaður CERT-hópur (Computer Emergency Response Team) til að herða viðbrögð vegna óværu á Internetinu. Þátttaka Íslendinga verði aukin í erlendu samráði um öryggismál og varnir efldar til að net- og upplýsingakerfi virki óhindrað. Sett verður fram aðgerðaáætlun hvernig megi verjast ruslpósti og henni framfylgt.
Samgönguráðherra hefur falið Póst- og fjarskiptastofnun að annast framkvæmd þeirra verkefna sem fram koma í fjarskiptaáætlun. Stofnuninni er jafnframt gert að gæta þess að fjarskiptafyrirtæki, sem veita almenna fjarskiptaþjónustu, geri viðeigandi ráðstafanir til þess að tryggja öryggi þjónustunnar. Stofnuninni er heimilt með hliðsjón af hagsmunum neytenda að setja skilyrði um rekstraröryggi neta, samhæfni mismunandi þjónustu og viðmið um gæði og rekstraröryggi þjónustuaðila.
Nýi vefurinn er skref til þess að upplýsa almenning um þau mál sem snúa að netnotkun og veita góð ráð en afar mismunandi er hversu vel netþjónustufyrirtækjum hefur tekist til í þessum efnum. Þráðlaus netkerfi verða til dæmis sífellt algengari en nokkuð hefur borið á heimildarlausri notkun þeirra af þriðja aðila. Á www.netoryggi.is eru upplýsingar og fyrirbyggjandi ráð, hvernig tryggja megi betur öryggi á slíkum netum, hvað æskilegt er að gera þegar tölva er tengd við netið í fyrsta sinn o.fl. Öryggismál þurfa að vera í stöðugri mótun og endurskoðun. Vefurinn mun taka breytingum í samræmi, auk þess sem bætt verður við efni eftir þörfum. Stofnunin vonar að hann verði gott innlegg í þessi mál.

