• Lógó Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna

Netspjall um fjármál heimilanna

UT-blaðið 24 .janúar 2006

Eftir Ástu S. Helgadóttur, forstöðumann Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna

Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna opnaði í október 2005 fyrir svonefnt netspjall. Þetta er tilraunaverkefni sem miðar að því að auka aðgengi og þjónustu við almenning um land allt.

Ráðgjafarstofan sinnir einkum ráðgjöf til einstaklinga og fjölskyldna sem eiga í greiðsluerfiðleikum. Oft eru erfið fyrstu skrefin að leita sér aðstoðar. Því er netspjallið frábær lausn til að brjóta ísinn og leita sér upplýsinga um þjónustu Ráðgjafarstofu og annað er varðar greiðsluerfiðleika. Þeir sem leita sér aðstoðar gefst kostur á að ná beinu sambandi við ráðgjafa í gegnum heimasíðu Ráðgjafarstofu.

Netspjallið er góð viðbót við þjónustu Ráðgjafarstofunnar og hentar vel starfsemi stofunnar. Með netspjalli er unnt að komast í beint netsamband við starfsmenn Ráðgjafarstofu á afgreiðslutíma stofunnar, kl. 9.00–12.00 og 13.00–15:00 alla virka daga. Auk netspjallsins er símaráðgjöf á sama tíma og unnt er að senda fyrirspurnir í tölvupósti á netfangið rad@rad.is. Þjónusta Ráðgjafarstofu er óháð búsetu og er endurgjaldslaus.

Miklar vonir eru bundnar við þessa auknu þjónustu Ráðgjafarstofunnar við einstaklinga og fjölskyldur á landsbyggðinni. Þjónustan er með þeim hætti að notendur fara inn á heimasíðu Ráðgjafarstofunnar, www.rad.is, eða inn á www.fjolskylda.is og fá beint samband við starfsmann stofunnar. Þetta eykur verulega möguleika þeirra sem eiga erfitt með að tala í síma, til dæmis heyrnalausra, til beinna samskipta við starfsmenn Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna.









Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica