Aðgengi að Internetinu alltaf alls staðar
UT-blaðið 24 .janúar 2006
Eftir Halldóru Matthíasdóttur, markaðsstjóra Opinna kerfa ehf.
Íslendingar gera vaxandi kröfur um aðgengi að Internetinu hvar og hvenær sem er. Fartölvueign er orðin nokkuð almenn og þráðlaus samskipti eru sívaxandi og hafa verið möguleg síðastliðin ár.
Handskrifað á fartölvuna
Helsta nýjungin á fartölvumarkaðinum er Tablet, meðfærileg tölva sem sameinar kosti og afl venjulegrar fartölvu ásamt möguleikum til að handskrifa beint á skjáinn með meðfylgjandi rafeindarpenna. Leikur einn er því að skrifa minnisatriði í tölvuna heima, í skóla, á fundum eða við skrifborðið. Tablet-fartölvan er til dæmis mjög hentug í vöruhúsum og á lagerum auk þess sem fólk í mennta- og heilbrigðikerfinu taka henni fagnandi.
Allar samskiptaleiðir í einu tæki
Lófatölvan vinsæla er framlenging á fartölvu eða borðtölvu. Lófatölvan og farsíminn hafa runnið saman í eitt tæki sem gerir notandanum kleift að vera í stöðugu Internetsambandi. Meðal nýjunga eru GPS-staðsetningartæki, vafri fyrir Internetið og margar skilaboðaleiðir, svo sem tölvupóstur, SMS og MMS auk aðgangs að MSN.
Fólk telur samskipti við umheiminn afar mikilvægan þátt í nútímasamfélagi og tæki á borð við fartölvu eða lófatölvu léttir því lítið. Það stundar bankaviðskipti á Internetinu, sækir upplýsingar með leitarvélum, fylgist með fréttum, kaupir vörur eða þjónustu og notar margvíslegar samskiptaleiðir: síma, tölvupóst, SMS, MSN og MMS. Auk þess er hægt að hafa aðgang að öllum gögnum - textum, myndum og hljóð - sem eru vistuð á öruggum, miðlægum svæðum.
Samhæfing og miðlun gagna
HP iPAQ lófatölvan, sem hægt er að samstilla við borð- eða fartölvu, gerir kleift að hafa öll persónuleg gögn og samskiptasögu hjá sér í einu litlu tæki, svo og tölvupóst, dagbók, auk innbyggðrar myndavélar, GPS-tækis og innbyggðs Microsoft “media-spilara“.
Tenging án dýrrar viðbótarþjónustu
iPAQ lófatölvan tengist Internetinu í gegnum gervihnött með GPRS eða EDGE tækni, auk þess að vera með 4-banda GSM tengingu og SD og SDIO rauf fyrir 802.11b WiFi þráðlaust netkort. Því er hægt að nota lófatölvuna hvar og hvenær sem er í heiminum án dýrrar viðbótarþjónustu.
Allt í einu tæki
Svipuð þróun hefur átt sér stað með prentara. Markaður fyrir fjölnotatæki fer ört vaxandi og HP framleiðir svokölluð „all-in-one” eða „allt-í-einu” tæki sem prenta, skanna, ljósrita og faxa. Auk þess eru á því raufar fyrir helstu gerðir minniskorta og því er hægt að prenta hágæða ljósmyndir beint af minniskortunum.
Heildarlína í tölvubúnaði
Hewlett-Packard er eini framleiðandinn í heiminum sem býður upp á heildarlínu í tölvubúnaði: fartölvur, borðtölvur, lófatölvur, netþjóna, prentara og stafrænar myndavélar. HP hafa verið mest seldu tölvur í heimi undanfarin ár og HP prentararnir eru einu prentararnir sem hafa fengið hæstu einkunn hjá PC magazine 14 ár í röð. Þar frekar vitnanna við?
Nánari upplýsingar um HP vörur er að finna á vefsíðunni, www.fartolvur.is og www.ok.is.

