• Áslaug Friðriksdóttir - SJÁ ehf.

Hvað er spunnið í opinbera vefi?

UT-blaðið 24 .janúar 2006

Í desember síðastliðnum voru kynntar niðurstöður á úttekt á 246 vefjum ríkisstofnana og sveitarfélaga á Íslandi í þeim tilgangi að greina landslag rafrænnar þjónustu á vefjum hins opinbera í landinu. Það var fyrirtækið Sjá ehf. sem tók að sér framkvæmd úttektarinnar.

Rafræn þjónusta vefjanna var metin af sérfræðingum Sjá ehf. og flokkuð í fjóra flokka: Grunnþjónustu, þjónustu sem flýtir fyrir afgreiðslu, rafræna afgreiðslu og rafræna málsmeðferð. Lagður var spurningalisti fyrir fulltrúa ríkisstofnana og sveitarfélaga og er farið í gegnum svör við þeim lista í skýrslunni. Innihald, nytsemi og aðgengi fatlaðra var einnig metið í úttektinni. Í niðurstöðunum er hægt að skoða yfirlit yfir þau atriði sem notuð eru til að mæla þessa þætti.

Í skýrslunni er sú leið valin að draga fram þar sem vel er gert og hvar miður og einnig að athuga hvaða aðstæður virðast styðja best við góða rafræna þjónustu á notendavænum og aðgengilegum vefjum. Sveitarfélögum og ríkisstofnunum eru gerð skil sérstaklega og niðurstöður dregnar fram þannig að þær megi nýtast sem best sem viðmið fyrir hvern og einn.

Hægt er að nálgast skýrsluna á vef forsætisráðuneytisins http://www.forsaetisraduneyti.is/upplysingasamfelagid/Utgefid_efni/nr/2064 og einnig er hægt að bera saman niðurstöður einstakra stofnana eða sveitarfélaga á vefsvæðinu http://www.felagsmalaraduneyti.is/media/html/samanburdur.html  

Áslaug Friðriksdóttir,
Framkvæmdastjóri Sjá ehf.









Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica