Flugkort og heimasíða Flugfélags Íslands
UT-blaðið 24 .janúar 2006
Eftir Ingu Birnu Ragnarsdóttur, sölu- og markaðsstjóra hjá Flugfélagi Íslands
Flugkortið er hagkvæmt greiðslu- og viðskiptakort, ætlað fyrirtækjum og stofnunum í viðskiptum við Flugfélag Íslands. Það er mjög hagkvæmur greiðslumáti fyrir þá sem ferðast mikið innanlands og vilja halda saman ferðakostnaði. Með Flugkortinu má greiða flugfargjöld til allra áfangastaða Flugfélags Íslands og Landsflugs, einnig hótel- og bílaleigukostnað hjá samstarfsaðilum.
Handhafar Flugkortsins fá sent viðskiptayfirlit mánaðarlega og þannig er fyrirtækjum í reikningsviðskiptum við Flugfélag Íslands gert mun auðveldara að fylgjast með kostnaði við ferðalög starfsmanna.
Flugkortið má nota að vild hjá öllum þeim fyrirtækjum sem að kortinu koma. Um hver mánaðamót er greiddur afsláttur af viðskiptum við Flugfélag Íslands inn á
kortareikninginn. Sá afsláttur er umsemjanlegur og fastur. Kjósi korthafi að nýta sér tímabundin tilboð Flugfélagsins eða samstarfsaðilanna getur hann greitt
með Flugkortinu en frekari afsláttur er þá ekki veittur og vildarpunktar eru ekki greiddir. Afsláttur samstarfsaðilanna er 10–35% og dreginn frá um leið og viðskiptin eiga sér stað.
Ýmiss konar sérþjónusta og fríðindi fylgja því að vera handhafi Flugkortsins. Þar má til dæmis nefna afslátt af vörum og þjónustu, hagræðingu við innritun til flugs, forgang á biðlista í flug og nákvæmt reikningsyfirlit mánaðarlega þar sem allur ferðakostnaður er sundurliðaður. Sé greitt fullt fargjald og afslátturinn nýttur er ekkert aukagjald tekið fyrir breytingar á flugferðum og sé ferðin afpöntuð fyrir brottför er hún endurgreidd að fullu.
Ný heimasíða
Flugfélag Íslands hefur náð ótrúlega góðum árangri í sölu fargjalda á Internetinu og var meðal fyrstu fyrirtækja hér á landi til að bjóða slíka þjónustu. Nú eru að meðaltali yfir 50% fargjaldanna bókuð beint á www.flugfelag.is og netklúbbsmeðlimum send út nettilboð að lágmarki einu sinni í viku. Flugélag Íslands hefur verið mjög framarlega í þróun bókunarvélar á Netinu sem hófst með kerfisbreytingum í upphafi árs 2001. Sú breyting átti stóran þátt í því að rekstur félagsins batnaði til muna og var afkoma félagsins fyrir árið 2002 í fyrsta skipti mjög góð.
Viðskiptavinir fá ekki lengur afhenta farseðla og mjög einfalt er að bóka á heimasíðunn. Í upphafi var talið að viðskiptavinum myndi mislíka að fá ekki farseðil í hendur en í ljós kom að langflestir voru mjög fegnir því að þurfa ekki lengur að hafa áhyggjur af því að týna eða gleyma farseðlinum. Viðskiptavinir eru vel meðvitaðir um þá þróun sem orðið hefur í sölu á farseðlum og gera má ráð fyrir að sala félagsins í gegnum heimasíðu félagsins verði hátt í 2300 milljónir á árinu 2006.
Í febrúar 2006 mun Flugfélag Íslands opna nýja og enn betri vefsíðu með ýmsum nýjungum, meðal annars í tengslum við nettilboðin. Einnig verður viðskiptavinum gert auðveldara að hafa beint samband við þjónustufulltrúa á Netinu sem ætti að flýta afgreiðslu bókana og miðlun upplýsinga.

