• Árni Pétur Jónsson forstjóri Og Vodafone

Fjölmiðlar og fjarskipti að renna saman

UT-blaðið 24 .janúar 2006

Viðskiptavinir Og Vodafone geta notfært símtæki sín til fleiri hluta en áður svo sem til þess að sækja myndskeið, tölvuleiki, hringitóna, fréttir, upplýsingar og ýmiss konar afþreyingu. Þá eru ýmsar útgáfur farsíma sem gera notendum mögulegt að fá tölvupóstinn beint í símtækið.

Meðal spennandi nýjunga sem eru nú þegar í boði má þar nefna efnisveituna Vodafone live! Árni Pétur Jónsson, forstjóri Og Vodafone, segir að hún tryggi viðskiptavinum fyrirtækisins nýjan afþreyingarheim í GSM símann óháð stað og stund:

Vodafone live! er aðgengilegt með sérstökum Vodafone live! símtækjum og því virkar þjónustan ekki í hvaða GSM síma sem er. Þjónustan er hins vegar uppsett í öllum Vodafone live! símtækjum. Þess vegna þurfa notendur einungis að smella á einn hnapp á símtækinu til þess að komast inn í síbreytilegan efnisheim.“   

Vodafone live! er afurð Vodafone Group Plc sem er stærsta farsímafyrirtæki heims og leiðandi í framsetningu aðgengilegrar og spennandi afþreyingu og upplýsinga fyrir farsíma. Og Vodafone hefur aðlagað Vodafone live! að íslenskum aðstæðum sem gerir viðskiptavinum mögulegt að upplifa spennandi og áður óþekkta afþreyingarmöguleika í farsíma. 

Samningur við leiðandi íslenska efnisveitu

Mynd af farsíma„Einn meginkostur Vodafone live! er ríkulegt efni sem þar er að finna, svo sem frá fjölmiðlafyrirtækinu 365, sem rekur meðal annars visir.is, Fréttablaðið, NFS-fréttastöðina og Sýn. Ennfremur má nefna efni frá D3, sem er leiðandi efnisveita hér á landi fyrir stafræna miðla. D3 dreifir og selur tónlist, myndefni, tölvuleiki og hringitóna í gegnum Netið, ljósleiðara, farsíma og gagnvirkt sjónvarp,“ segir Árni Pétur. Samningur Og Vodafone við D3 er einstakur að því leyti að efnisveitan ýr yfir miklum fjölda íslenskra hringtóna fyrir farsíma og er í raun með yfirburðastöðu á markaði hér á landi. Þá hefur Og Vodafone gert samning við arvato mobile, sem er alþjóðlegt fyrirtæki á sviði afþreyingar, um dreifingu á afþreyingarefni í Vodafone live! fyrir notendur hér á landi. Arvato mobile er afþreyingarfyrirtæki fyrir farsíma og fleiri miðla. Það er dótturfyrirtæki arvato Bertelsmann AG og þróar lausnir fyrir fjarskiptafyrirtæki, fjölmiðla og netgáttir. 

„Það má því segja að fjarskipta- og fjölmiðlamarkaður sé að færast inn á ný svið en við hjá Og Vodafone spáum frekari samruna miðla þar sem hver og einn getur valið það efni sem hann kýs, hvort sem það er í gegnum farsíma, tölvu eða sjónvarp,“ segir Árni Pétur. 

Tölvupóstur óháð stað og stund

Farsíminn varð sú bylting að fólk þurfti ekki lengur að sitja við símtækið til að geta notað það og nú er komið að tölvupóstinum. Fólk þarf ekki lengur að sitja við tölvu til að taka á móti og senda gögn, þess í stað er nú hægt að fá upplýsingarnar í GSM síma. „Þessi nýja og þægilega lausn gefur fólki, sem notar tölvupóst í miklum mæli, aukið frelsi og hagræði til að nýta tímann betur og verja deginum eftir því sem því hentar.“ 

Árni Pétur segir að Vodafone BlackBerry sé meðal þeirra nýju lausna sem gera fólki kleift að sækja tölvupóstinn óháð stað og stund. Vodafone BlackBerry er án vafa fremsta þráðlausa samskiptatækið í dag en það gerir notendum mögulegt að vera í stöðugum tengslum við viðskiptavini og samstarfsmenn. „BlackBerry er GSM sími sem veitir notendum einnig aðgang að dagbók, tengiliðalista og Vefnum, án þess að þeir þurfi að bíða eftir póstinum. BlackBerry hefur vakið mikla athygli hjá notendum Og Vodafone enda býr tækið yfir áður óþekktum möguleikum. Það eykur skilvirkni og sparar tíma eins rannsóknir hafa sýnt.“ 

BlackBerry tækni í Nokia farsíma

Kanadíska fyrirtækið RIM Research in Motion, framleiðandi BlackBerry tækjanna og –tækninnar, hefur unnið ötullega að því að fjölga notendum, meðal annars með BlackBerry Connect, sem gefur öðrum farsímanotendum möguleika á því að notfæra sér kosti BlackBerry. „Með BlackBerry Connect, sem verður tekið í notkun hjá Og Vodafone á næstunni, verður hægt að nota þá möguleika sem eru til staðar í BlackBerry í fjölda annarra tækja, svo sem í Nokia símtækjum. Nú þegar eru um fjórar milljónir sem nota BlackBerry en gera má ráð fyrir að þeim fjölgi ört til viðbótar þegar BlackBerry Connect nær flugi.“

Árni Pétur segir að Vodafone leggi mesta áherslu á að gera nýja tækni ætíð þannig úr garði að hún sé aðgengileg og einföld í notkun. „Það þarf enga sérhæfða tækniþekkingu til að nýta sér þær lausnir sem Vodafone býður. Hvort sem um er að ræða Vodafone live!, BlackBerry eða aðrar nýjungar er starfsfólk Og Vodafone þjálfað til að veita ráðgjöf og aðstoða viðskiptavini svo að þeir geti valið það sem þeim hentar.“









Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica