Er þetta Tölvudeildin þín?

UT-blaðið 24 .janúar 2006

Eftir Stefán Jóhannesson, framkvæmdastjóra Þekkingar hf.

Þekking hf. varð til seinni hluta árs 1999 þegar tölvudeild KEA var gerð að hlutafélagi. Á árinu 2001 sameinuðust Þekking og Tristan ehf. í Kópavogi. Þekking stendur nú traustum fótum á grunni þessara tveggja félaga. Höfuðstöðvar félagsins eru á Akureyri og öflug starfsstöð í Kópavogi. Alls starfa um 50 manns hjá fyrirtækinu og það hefur fimmfaldast að stærð á þeim 6 árum sem liðin eru frá stofnun þess.

Bifreið Þekkingar hfMeginstarfsemi Þekkingar er rekstrarþjónusta tölvukerfa, þ.m.t. hýsing, kerfisveita, útstöðvaþjónusta ofl. Einfaldast er að líkja starfsemi Þekkingar hf við starfsemi tölvudeildar fyrirtækja enda höfum við notast við slagorðið „Tölvudeildin þín“. Það hefur sýnt sig að þau fyrirtæki sem velja þá leið að semja við Þekkingu hf um útvistun á rekstri tölvukerfis og þjónustu því tengdu hafa náð fram umtalsverðum sparnaði en bæta jafnframt þjónustuna.

Þekking hf hefur áralanga reynslu af því að vinna með sérfræðingum í tölvudeildum fyrirtækja og stofnana. Sú reynsla hefur getið af sér aðferðafræði sem notuð er við slíkt samstarf. Undanfarin ár hefur félagið unnið markvisst að uppbyggingu á traustu hýsingarumhverfi ásamt því að innleiða verkferla og vinnubrögð í samræmi við viðurkennda staðla.

Meðal viðskiptavina félagsins eru nokkrar stærstu verslunarkeðjur landsins, lyfjaverslanir, heildsölur, framleiðslufyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir.









Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica