• Birra - lógó verkefnisins

Breiðband í dreifbýli

UT-blaðið 24 .janúar 2006

Eftir Þórarinn Sólmundarson, Byggðastofnun

Íslendingar taka þátt í verkefninu „breiðband í dreifbýli“ (Broadband in rural and remote areas - Birra) á vegum Norðurslóðaáætlunar Evrópusambandsins (Northern Periphery Programme, NPP). Verkefnið nær til fjögurra landa á norðurslóðum, þ.e.a.s. Finnlands (Lapplands og Kainuu héraðs), Svíþjóðar (Västernorrland), Skotlands (Hjaltlands) og Íslands (norðanverðra Vestfirðjarða og Skagafjarðar).

Markmiðið er að afla gagna um hvernig nýta megi betur fjarskipta- og upplýsingatækni í dreifbýli og með hvaða hætti megi draga úr jaðaráhrifum og styrkja samkeppnisstöðu byggða á norðurslóð. Jafnframt að flýta fyrir þróun hagnýtrar upplýsingatækni og stuðla að jöfnu aðgengi að þeim tækifærum sem hún veitir. Liður í þessu er að kortleggja stöðu, greina þarfir fyrir frekari uppbyggingu fjarskiptakerfa og kanna hvernig samnýta megi tækni. Stefnt er að því að búa til verkfæri sem hjálpar til við að meta stöðu sveitarfélaga á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni þar sem horft er eftirfarandi þjónustuþátta,  fjarnám (eLearning), fjarhjúkrun (eCare), fjarvinna (eWork), rafræn stjórnsýsla (e-government) og rafræn viðskipti (e-business). Miðlun þekkingar og reynslu á milli samstarfsaðila og annarra við lausn sameiginlegra viðfangsefna og myndun gagnlegra tengslaneta er síðan iðulega ávinningur slíkra samstarfsverkefna. Íslenska áherslan í verkefninu er á stöðugreiningu, markmiðasetningu, framtíðarsýn, áætlanagerð og lausnir.

Þátttakendur í verkefninu

Íslenskir þátttakendur í verkefninu eru Ísafjarðarbær, Bolungarvík og Súðavík, Skagafjörður, Byggðastofnun, Síminn hf, Póst og fjarskiptastofnun, IMG Deloitte ehf og UD verkefnið – Leiðbeiningamiðstöðin Sauðárkróki.

Lokið er samantekt gagna um stöðu grunnkerfa fjarskipta (þ.e. uppbyggingu háhraða fjarskiptakerfa) og nú unnið er að úrvinnslu ítarlegra spurningalista sem sendir voru til fyrirtækja og stofnana á svæðunum. Viðtöl við sveitarstjórnarmenn,  fulltrúa atvinnuþróunarfélaga, fyrirtækja, stofnana og annarra hagsmunaaðila eru að hefjast. Verðlagning og notkunarmynstur breiðbandsþjónustu verður kannað og teknar saman upplýsingar um hvaða áætlanir eru uppi um frekari tækniuppbyggingu. Þá verður dregin upp mynd af því hvernig háhraða fjarskipti nýtast í daglegu lífi og störfum íbúa. Leitað verður svara við því hvernig bæta megi stjórnsýslu og þjónustu fyrirtækja og kannað verður hvort þau séu markvisst að nýta möguleika upplýsingatækninnar.

Á þeim svæðum sem verkefnið tekur til hérlendis eru þéttbýlisstaðirnir tengdir landsneti ljósleiðara. Samkeppni þjónustuveitenda er allnokkur og þá aðallega um ADSL tengingar. Á afskekktari stöðum er gagnaflutningur þó enn bundin við ISDN vegna fjarlægða frá símstöðvum. 

Verkefninu lýkur í júní 2006

Yfirlitsmynd - Norðvesturhluti ÍslandsVerið er að hefja prófanir á verkfæri sem þróað hefur verið í verkefninu til að skilgreina á einfaldan hátt stöðu sveitarfélaga á sviði upplýsingatækni.  Skilgreindur er ákveðinn stigi þar sem núverandi staða sveitarfélags skilgreinist í ákveðnu þrepi er varðar viðkomandi svið upplýsingatækninnar þ.e. á sviðum fjarnáms, fjarvinnu, rafrænnar stjórnsýslu, rafrænna viðskipta, og heilsugæslu. Markmið sveitarfélags er síðan væntanlega að flytjast upp stigann um eitt þrep eða fleiri í viðkomandi þætti. 

Til að flytjast upp stigann þarf upplýsingar um hvað þurfi til.  Það gætu verið upplýsingar um tækniforsendur, grunngerð, menntun, skipulag, aðferðir og kostnað.   Verkefnið skilar áætlun um hvernig best sé að flytja sig á milli þrepa og þá gagnast þær reynslulýsingar sem finna má á gagnavef verkefnisins.  Þjónusta á sviði upplýsingatækni verður að vera sjálfbær þ.e. að vera rekin á fjárhagslegum forsendum.  Víða í sveitarfélögum er staðan sú að slíkar forsendur eru ekki til staðar og í verkefninu er því fjallað um hvað vanti til að þeim skilyrðum verði betur fullnægt.

Verkefnið hófst í janúar 2005 og því lýkur í júní 2006.  Lokaráðstefna verkefnisins verður haldin á Íslandi þar sem gerð verður grein fyrir niðurstöðum þess.









Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica