Komdu að læra upplýsingatækni!
Eftir Ásrúnu Matthíasdóttur, lektor við Háskólann í Reykjavík og formann UT-kvenna.
Upplýsingatækni er samheiti yfir ýmsar greinar sem lúta að hönnun, þróun og nýtingu tækni í samfélagi þar sem tölvur eru nýttar á markvissan hátt til að vinna með gögn. Dæmi um fræðigreinar sem falla undir upplýsingatækni eru tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði, upplýsingafræði, rafeindafræði og fjarskiptafræði. Hægt að segja að upplýsinga¬tækni sé í dag orðinn hluti af flestum fræðigreinum þar sem tölvur eru nýttar til að skapa og miðla upplýsingum.
Til að þróun geti orðið í upplýsingatækni þarf ungt fólk að mennta sig á þessu sviði en námsval nemenda er oft mjög kynbundið og leita stúlkur oft í greinar sem tengjast umönnun og samskiptum en drengir meira í tæknigreinar. Á meðfylgjandi mynd má sjá fjölda kvenna í námi í þremur námsgreinum á háskólastigi á árunum 2002 – 2004 samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Neðsta línan á myndinni sýnir fjölda kvenna í námi í tæknigreinum og verkfræði, miðlínan sýnir fjölda kvenna í lækningum og heilbreiðgisgreinum en efsta línan sýnir fjölda kvenna í uppeldisfræði, íþróttum og kennaranámi. Á myndinni sést einnig að fjölgun kvenna í námi í tæknigreinum og verkfræði hefur verið mun hægari en í uppeldisfræði, íþróttum og kennaranámi.

Ef litið er á tölur fyrir árið 2004 kemur í ljós að 338 konur voru í námi í tæknigreinum og verkfræði, 1.444 í námi í lækningum og heilbrigðisgreinum en 2.674 í námi í uppeldisfræði, íþróttum og kennaranámi. Konur í tæknigreinum og verkfræði eru þá um 7,6 prósent af þessum hópi árið 2004.
Ef við berum saman konur og karla í tæknigreinum og verkfræði þá eru konur um 24% nemenda árið 2004.
Í mínum huga er óæskilegt fyrir starfsgrein að hafa ekki jafnt hlutfall kvenna og karla og eru rökin meðal annars að flestar starfsgreinar þurfa að veita þjónustu til beggja kynjanna og hafa skilning á þörfum og óskum þeirra.
Brugðist við fækkun kvenna í tölvunarfræði
Ein af þeim greinum sem nefnd er hér að framan, og fellur undir upplýsingatækni, er tölvunarfræði. Þrátt fyrir gott námsframboð og góða atvinnumöguleika hafa sífellt færri nemendur hafa laðast að þeirri grein undanfarin ár og þá sérstaklega hefur konum fækkað. Erfitt er að segja til um ástæðuna enda er hún eflaust ekki einföld en rannsóknir hafa m.a. sýnt að konur skorti hvatningu og fyrirmyndir í tölvunarfræði. Til að bregðast við þessu var faghópurinn UT-konur stofnaður árið 2005 og er markmið hans m.a. að stuðla að fjölgun kvenna í upplýsingatækni og í háskólanámi í tölvunarfræði og kerfisfræði (sjá nánar á www.sky.is). Félagið hefur stofnað vinnuhópa sem kallast rithópur, fræðslu- og hvatningarhópur, tölfræðihópur og skemmtihópur og hafa þeir að markmiði að virkja félaga til verka. Við í UT-konur hvetjum konur til að ganga til samstarfs við okkur (netfang utkonur@sky.is) en einnig viljum við hvetja ungar konur til að kynna sér náms- og starfsmöguleika í upplýsingatækni.

