• Fundarherbergi á Nordica hótel

Fullkomnasta ráðstefnuhótel landsins

Frá því að Nordica hótel var opnað í apríl 2003 á grunni hótels Esju hefur Nordica verið leiðandi í ráðstefnulausnum á Íslandi. Nordica hótel er hannað með þarfir ráðstefnugesta í huga og er allur aðbúnaður fyrsta flokks. Búið er að endurnýja öll herbergi og er ekkert lengur í húsinu sem minnir á gömlu Esjuna. Stærsti fundarsalur hótelsins tekur 650 manns í sæti og þar eru meðal annars fjórir stórir skjávarpar. 

„Við erum með einn öflugasta skjávarpa landsins hjá okkur, sérsmíðaðan SANYO breiðtjaldsvarpa fyrir hótelið,” segir Stefán V. Stefánsson, tæknimaður á Nordica. Stefán er einn af 15 starfsmönnum ráðstefnudeildar hótelsins.  Að sögn Brynhildar Guðmundsdóttur ráðstefnustjóra er deildin skipuð starfsfólki sem reglulega fari á námskeið og fylgist vel með því hvað er að gerast í ráðstefnumálum erlendis enda sé hótelið fyrst og fremst að keppa við erlend ráðstefnuhótel.  „Hér notum við Netið mjög mikið til að ná okkur í upplýsingar,” segir Stefán.  Á Nordica Hotel er  þráðlaust net  í öllum ráðstefnusölum sem og í gestamóttöku og bar hótelsins.

Nordica hótel í Reykjavík









Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica