Norrænn skattavefur, NordiskeTax.net
Það verður sífellt algengara að fólk eigi skattalegra hagsmuna að gæta í fleiru en einu landi. Skattyfirvöld á Norðurlöndunum hafa brugðist við þessu og í maí 2005 var opnaður vefurinn NordiskeTax.net, sem er afrakstur samstarfsverkefnis, Hönnun og uppsetning voru í höndum starfsmanna ríkisskattstjóra á Íslandi. Þarna er að finna víðtækar upplýsingar um skattamál í löndunum. Vefurinn er einfaldur í uppbyggingu og aðgengilegur. Efnið er á fimm norrænum tungumálum, dönsku, finnsku, íslensku, norsku og sænsku, auk ensku.
Í byrjun var ákveðið að á vefnum yrðu fjórir meginefnisflokkar sem líklegast þótti að mest myndi reyna á: „vinna í öðru landi“, „fasteign í öðru landi“, „lífeyrisþegar“ og „námsmenn“. Í hverjum efnisflokki eru annars vegar birtar reglur búsetulandsins og hins vegar reglur hins landsins sem í hlut á. Rétt þótti að takmarka efnisflokka í upphafi, m.a. vegna umfangs vefsins því hverjum flokki fylgja 60 vefsíður sem halda þarf við og uppfæra. Þessu til viðbótar eru svo almennar upplýsingar, t.d. um skattkort, kennitölu og framtöl.

Nordisk eTax býður upp á fullkomið kerfi þar sem hægt er að senda inn rafrænar fyrirspurnir til skattyfirvalda Norðurlandanna og fá svar frá vefskattstofu sem skattyfirvöld landanna standa að. Starfsfólk vefskattstofunnar vinnur saman á vefnum og nýtir einfalt kerfi til samvinnu og úrvinnslu mála.
Loks er rétt að geta rúsínunnar í pylsuendanum: klukku sem sýnir staðartíma í hverju landi. Klukkan sú getur til dæmis komið sér vel þegar fólk þarf að átta sig á hvort norrænar kauphallir séu enn opnar eður ei!
