• Sturla Böðvarsson samgönguráðherra

Íslands altengt

Eftir Sturlu Böðvarsson, samgönguráðherra

Öflug fjarskipti eru forsenda þess að fámenn þjóð geti látið til sín taka í upplýsingasamfélagi samtímans. Miklar breytingar hafa átt sér stað á fjarskiptasviði á skömmum tíma. Tækni hefur fleygt fram og samkeppni hefur stóraukist í kjölfar samdræmdrar Evrópulöggjafar þar sem einkaréttur var m.a. afnuminn. Fjarskipti, upplýsingatækni og fjölmiðlun eru að renna saman og hefðbundin tækni að víkja fyrir nýrri. Netkerfi nútímans má kalla vegakerfi upplýsingasamfélagsins og fyrir íslenska þjóð getur jafnt aðgengi allra landsmanna að þeim samgönguæðum skipt sköpum í mörgu tilliti.

Ég er sannfærður um að fjárfesting í hraðbrautum upplýsingamiðlunar um land allt er lykill að jafnari búsetuskilyrðum en ella. Ég er líka sannfærður um að öflugar samskiptabrautir munu leika stórt hlutverk í alþjóðlegri samkeppnishæfni okkar á komandi árum. Aðgangur okkar að upplýsingum og menntunartækifærum, hljóðvarps- og sjónvarpsefni, hröðum gagnaflutningi og tölvupóstssamskiptum, öruggum símkerfum og greiðum samskiptum í sinni víðustu mynd mun skipta miklu um lífsgæði einstaklinganna og verðmætasköpun atvinnulífsins.

Metnaðarfull markmið stjórnvalda á þessu sviði eru því sjálfsögð. Í þeirri víðtæku stefnumótunarvinnu sem ég hratt af stað til þess að leggja grunn að fjarskiptaáætlun til ársins 2010 hefur stór hópur fólks lagt hönd á plóg og fyrir þá miklu vinnu vil ég þakka. Þessi áætlun hefur nú verið samþykkt í ríkisstjórn og sem ályktun Alþingis. Á næstu vikum mun ég gera grein fyrir helstu markmiðum hennar á fundum víða um land. Vonandi mun ríkja einhugur á meðal þjóðarinnar um þá uppbyggingu fjarskiptakerfa sem framundan er og um það sem í rauninni er ennþá mikilvægara; nýtingu tækifæra sem upplýsingatæknin færir okkur sem fámennri eyþjóð í strjálbýlu landi.

Grundvallaratriði fjarskiptaáætlunar til 2010 er að allir landsmenn sitji við sama borð, óháð búsetu. Ísland verður því altengt. Gert er ráð fyrir því að þjónustugjöld einkarekinna fjarskiptafyrirtækja standi undir uppbyggingarkostnaði og rekstri þjónustunnar nema í undantekningartilfellum á einstaka svæðum þar sem stjórnvöld hlaupa undir bagga. Það verður gert með framlögum úr Fjarskiptasjóði sem stofnaður var með lögum frá Alþingi og hefur yfir að ráða umtalsverðum fjármunum frá sölu Símans.

Útbreiddur misskilningur er að stjórnvöld hafi með sölu Símans misst úr hönudunum það eina tæki sem þau höfðu til að stuðla að uppbyggingu fjarskipta í landinu. Sú er raunin að eignarhald ríkisins á Símanum tafði fyrir frekari uppbyggingu þar sem fjarskiptalög heimiluðu ekki að markaðsráðandi fyrirtæki yrði beitt í uppbyggingu á svæðum sem ekki voru talin geta staðið undir stofn- og rekstrarkostnaði fjarskiptakerfa.  Nú að lokinni sölu Símans hefur Fjarskiptastjóður, sem ætlað er að styðja við uppbyggingu á strjálbýlum svæðum, verði stofnaður og um leið skapaðar forsendur til þess að bjóða út þá þjónustu sem fjarskiptafyrirtækin hafa hingað til ekki treyst sér í.









Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica