Hæ amma!

Eftir Helgu Kristínu Haraldsdóttur, markaðsstjóra EJS hf.

Ég sakna þín eftir að þú og afi ákváðuð að flytja til Spánar til að láta eftirlaunapeninginn duga lengur. En það er samt gaman þegar við tölum saman í gegnum vefmyndavélina og ég get séð þig. Ég þarf samt að læra betur stillingarnar því þú ert eitthvað svo dökk á myndinni. Kannski að pabbi geti látið fyrirtækið sem sér um tölvumálin laga það? Nema það sé sólin?

Með kjöltutölvu í kjöltunniÉg er orðinn soldið þreyttur á pabba því hann er alltaf heima eftir að hann stofnaði fyrirtækið með köllunum úr vinnunni og passar að ég sé búinn að læra heima áður en ég fæ að komast í tölvuna. Ég er með gömlu tölvuna hans en hann fékk nýja á þjónustuleigu hjá Hýsingu. Hann er alltaf í henni og segist vera vinna í bókhaldi. Hann má bara ekki sjá tölvu þá þykist hann fara inn á kerfin í vinnunni og fer að vinna. Helduru að það sé satt?

Reyndar segir pabbi að hans sé svo frjáls núna að hann ætli með okkur í heimsókn til ykkar. Hann segir að við getum verið hjá ykkur í allt sumar því hann geti líka unnið þar. Hann tekur bara vinnusímann með sér og allir halda að hann sé á skrifstofunni!

Annars er Gudda systir að gera pabba brjálaðan eftir að bærinn lét okkur fá nýja síma. Hún er alltaf í símanum að tala við nýju vinkonurnar sínar og segir að það sé allt í lagi því það kosti ekki neitt af því að það er innan bæjarins. Þetta eru svona ipé símar, en ég veit ekkert hvað það er.

Kemur þú og afi í 10 ára afmælið mitt í næsta mánuði?

  • Fólk sem er nútímalegt í hugsun færir sér alla möguleika upplýsingatækninnar í nyt og leitar hagræðingar á öllum sviðum. Fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar leita sífellt meira til sérhæfðra aðila til að reka síma- og upplýsingakerfin sín. Ekkert mælir gegn því að bæjarfélög tryggi öllum íbúum tengingar við símakerfi og Netið og þriðji aðili reki svo kerfin í hagræðingarskyni. Þannig njóta allir stærðarhagkvæmni, lágmarka áhættu sína en njóta alls þess sem upplýsingatæknin hefur upp á að bjóða. EJS Hýsing stendur með þeim sem vilja ná árangri.








Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica