Dagur rafrænna reikninga

Icepro efnir til málfundar með yfirskriftinni „XML-dagur rafrænna reikninga“ í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, 7. hæð, á mánudaginn kemur, 23. janúar, kl. 13:00-17:00. Fundurinn er í tilefni Upplýsingatæknidagsins 24. janúar. Væntanlegir gestir eru skráðir í síma 510 7100 eða hjá fundir@chamber. is. Þátttökugjald er 5.500 krónur.

XML (eXtended Markup Language) er skylt HTML (HyperText Markup Language) sem algengt að nota á Vefnum. XML gerir tölvunotendum kleift að skiptast á upplýsingum með einföldum hætti.

Fundarboðendur segja í tilkynningu að menn hafi tileinkað sér XML-tæknina en lítið hafi verið hugað að samskiptastöðlum. Nú séu frændur vorir á Norðurlöndum hins vegar að ná saman um sameiginlega gerð rafrænna reikninga, sem sparað geti fúlgur fjár.

Rafrænir reikningar verða kynntir á málfundinum: Evróputilskipun þar að lútandi, staða mála annars staðar á Norðurlöndum, stefna íslenskra stjórnvalda varðandi rafræn innkaup og tæknileg útfærsla slíkra reikninga.

Bjarne Emig, verkefnisstjóri DS (dönsku staðlasamtakanna), formaður Danpro og prófessor í viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn, verður gestur fundarins. Hann á sæti í UN/CEFACT og er þar formaður sendinefndar Dana.









Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica