Ítarefni
Forsætisráðherra lagði fram í ríkisstjórn, þann 13. janúar 2006, skýrsluna Aðgengi allra að vefnum . Skýrslan er unnin af forsætisráðuneyti og félagsmálaráðuneyti og eru þar lagðar fram tillögur um aðgerðir sem stuðla að því að fatlaðir og aðrir hópar sem gefa þarf sérstakan gaum í upplýsingasamfélaginu geti nýtt sér þjónustu á Netinu. Ákveðið hefur verið að fara að þeim tillögum sem lagðar eru fram í skýrslunni og stefna að því að allir opinberir vefir á Íslandi uppfylli ákveðnar lágmarkskröfur í aðgengismálum.
Tillögur sem settar eru fram í skýrslunni „Aðgengi allra að vefnum“:
- Viðmiðunarreglur W3C um aðgengismál, Web Content Accessibility Guidelines 2.0, (WCAG 2.0) ásamt fylgiskjölum svo sem gátlista (e. Checklist of Checkpoints) og snjallráðum (e. Quick Tips) verði þýddar á íslensku um leið og þær taka gildi og birtar á stjórnarráðsvefnum. Tryggt verði að þýðingin verði ávallt uppfærð.
- Opinberir aðilar verði hvattir til að marka sér stefnu í aðgengismálum (sjá fylgiskjal I) fyrir árslok 2006.
- Stefnt verði að því að opinberir aðilar uppfylli lágmarkskröfur WCAG 2.0 um aðgengi að vef eigi síðar en fyrir árslok 2007. Þar til WCAG 2.0 reglurnar hafa tekið gildi verði núverandi reglur, WCAG 1.0, notaðar til viðmiðunar.
- Sett verði upp viðmið og leiðbeiningar á sérstakri aðgengissíðu. Þar verði jafnframt safnað saman algengum spurningum og svörum eftir því sem þurfa þykir og notendum gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum um það sem betur má fara með tilliti til aðgengis.
- Ofangreindar reglur og viðmið verði kynnt sem víðast, svo sem með auglýsingum, útgáfu kynningarrita og bæklinga sem auðveldlega má dreifa og koma á framfæri, til dæmis í skólum og á fundum og ráðstefnum.
- Fyrirtæki verði hvött til að taka mið af viðmiðunum hins opinbera og marka sér stefnu í aðgengismálum samkvæmt fylgiskjali I .
- Opinberir aðilar verði hvattir til að koma sér upp þekkingu á aðgengismálum eða til að nýta sér þjónustu fyrirtækja og sérfræðinga í aðgengismálum, meðal annars varðandi ráðgjöf og úttektir á vefjum sínum.
- Þess verði gætt þegar gæði rafrænnar þjónustu og útbreiðsla eru könnuð að slík könnun nái einnig til þeirra þátta er varða aðgengismál.
- Viðræður verði teknar upp við Ríkiskaup í því skyni að móta reglur um að innkaup á vegum ríkisins uppfylli kröfur stjórnvalda um gott aðgengi að vefnum fyrir alla.
- Farið verði fram á að þeir hugbúnaðarseljendur sem hið opinbera skiptir við geri grein fyrir því hvernig hugbúnaður þeirra kemur til móts við kröfur W3C um hugbúnað, Checklist of Checkpoints for Authoring Tool Accessibility Guidelines 1.0 (ATAG 1.0 eða nýrra) um aðgengileika og þeir hvattir til þess að endurbæta búnað sinn ef þörf krefur.
