Stefnumótun

Leiðbeiningar fyrir stefnumótun

Meðal annars byggt á: http://www.w3.org/WAI/impl/Overview.html og http://www.w3.org/WAI/impl/pol

Þegar ákvörðun hefur verið tekin um að gera vef stofnunar aðgengilegan öllum er mikilvægt að íhuga hvernig haga skuli ferlinu. Í skjalinu eru settir fram leiðbeiningar fyrir stofnanir og fyrirtæki.

Mikilvægt er að koma á laggirnar hópi innan stofnunar eða fyrirtækis sem fjallar sérstaklega um aðgengismál. Ef t.d. vefstjórn er þegar starfandi er vænlegt að bæta aðgengismálum á verkefnalista hennar Gera þarf frumathugun á stöðunni hvað varðar aðgengi allra að vef, meðal annars með því að gera úttekt á stöðu vefs með tilliti til aðgengis fyrir alla en einnig með tilliti til vefumsjónarkerfis, skrifstofuhugbúnaðar, PDF-skrifara og þess háttar. Meta þarf hvaða úrlausnir eru mögulegar á þeim vandamálum sem kunna að koma í ljós (til dæmis lagfæringar á vef, skipti á hugbúnaði, endurmenntun, endurhönnun á vef og svo framvegis). Ákveða þarf hvernig reglulegu mati á aðgengileika vefjar verður háttað. Vefumsjónarmenn þurfa að hafa aðgang að þeim verkfærum sem nauðsynleg eru, svo sem gátlistum af ýmsu tagi, prófunarhugbúnaði, PDF-skrifara og upplýsingar um aðgengismál þurfa að vera tiltækar.

Marka þarf skriflega stefnu í aðgengismálum, kynna hana starfsmönnum og setja á vef stofnunarinnar. Stefnan í aðgengismálum þarf að vera áberandi og öllum ljós.

Það sem hafa þarf í huga varðandi stefnumótun:

  • Þess þarf að gæta að tilvísun í viðmiðunarreglur verði skýrar þannig að óyggjandi sé í hvaða reglur er vísað.
  • Tilgreina þarf að hvaða aðgengisstigi er stefnt.
  • Nauðsynlegt er að setja fram fyrir hvaða tíma tilteknu aðgengisstigi á að vera náð. Tímamarkmiðum má einnig skipta upp í heppilega áfanga.
  • Tilgreina þarf til hvaða hluta vefjar stefnuyfirlýsing nær.
  • Tilgreina þarf stefnu gagnvart efni frá þriðja aðila.
  • Huga þarf að því hvernig þjálfun starfsfólks og námskeiðahaldi verður háttað.
  • Tilgreina þarf hvernig merkja beri síður eða vefflokka sem uppfylla kröfur stofnunar um aðgengi.
  • Tilgreina þarf hvernig staðið skuli að eftirliti með vefsvæði. Fylgja þarf eftir endurbótum á síðum eða efnisflokkum sem ekki uppfylla kröfur um aðgengi.

Dæmi um stefnuyfirlýsingu stofnunar um aðgengi allra að vefnum:

Xstofnun hefur einsett sér að gera vef sinn aðgengilegan fötluðum. Stefnt er að því að allt efni á vef stofnunarinnar frá árinu 2002 muni a.m.k standast viðmiðunarreglur WCAG 2.0 af gerð A fyrir 1. júlí 2007. Jafnframt mun eldra efni sem talið er mikilvægt eða er mikið sótt í standast sömu viðmið. Þess verður gætt að nýtt efni sé í samræmi við yfirlýsta stefnu sem birt er á vefnum.

Komið verður á fót gæðaeftirliti með það að markmiði að tryggja að vefur stofnunarinnar uppfylli ávallt þau markmið sem stofnunin hefur sett sér. Þess verður krafist að efni frá þriðja aðila uppfylli kröfur stofnunarinnar um aðgengi fyrir alla. Jafnframt verður farið fram á að hugbúnaðarsalar sem stofnunin skiptir við geri grein fyrir því hvernig búnaður þeirra tekur tillit til krafna um aðgengismál.

Þeir efnisflokkar vefjar okkar sem uppfylla aðgengisstefnu Xstofnunar eru merktir sérstaklega með eftirfarandi texta eða krækju í hann: Þessi efnisflokkur uppfyllir kröfur WCAG 2.0 af gerð A um aðgengi.

Séð verður til þess að starfsfólk fái þá þjálfun sem til þarf miðað við starf sitt og hlutverk. Boðið verður upp á endurmenntun eftir því sem kröfur um aðgengi breytast eða ný tækni kemur fram. Þetta verður meðal annars gert með því að koma upp sérstakri upplýsingasíðu um aðgengismál.

Stofnunin mun endurskoða stefnu sína reglulega í því skyni að uppfylla enn betur kröfur um aðgengi allra að vefnum.







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica