Hýsing
Með hýsingu er hér átt við að þjónustuaðili tekur að sér að sjá um skilgreinda og/eða afmarkaða þætti við upplýsinga- eða tölvukerfi rekstraraðila, oftast í eigin húsakynnum fremur en í húsakynnum rekstraraðila. Upplýsingar í kerfunum eru í eigu rekstaraðilans, ekki hýsingaraðilans.
Hýsing getur falið í sér t.d. vefhýsingu, hýsingu tölvupóstkerfis, hýsingu sértækra kerfa, hýsingu vélbúnaðar eða jafnvel hýsingu og rekstur upplýsingakerfa rekstraraðila í heild.
Kostir við hýsingu geta m.a. verið þeir að rekstraraðili getur betur einbeitt sér að kjarnastarfsemi sinni. Einnig er hugsanlega hægt að sleppa við fjárfestingu í búnaði og aðgangur fæst að sérfræðiþekkingu. Hins vegar ber þess að geta að kjarnastarfsemi margra stofnana og fyrirtækja er svo mjög tengd upplýsingatækni og þróun hennar að það getur verið hagsmunamál að viðhalda sérfræðiþekkingu innanhúss. Mat á hýsingarkostum er því mjög háð eðli og starfsemi rekstaraðila.
- Úthýsing tölvukerfa (Stjórnendavefur)
- Opinber innkaup á vél- og hugbúnaði ásamt þjónustu á sviði upplýsingatækni (Stjórnendavefur)
- Þjónustusamningar (Stjórnendavefur)
- Reglugerð nr 343/2006 um samninga um rekstrarverkefni sem ráðuneyti og ríkisstofnanir gera til lengri tíma en eins árs
- Útvistunarstefna ríkisins 2006
