Leit og leitarvélar
Leitarvélar eru hugbúnaður sem notaður er til að finna vefsíður, eða aðrar upplýsingar í tölvukerfi, sem innihalda þau orð sem notandinn skilyrðir leitina við. Hugbúnaður sem finnur upplýsingar í tölvukerfi notanda er leitarvél. Mörg vefsetur bjóða upp á leit innan setursins.
Leitarvélar fyrir veraldarvefinn nota nokkrar mismunandi aðferðir við að finna og flokka vefsíður. Leitarvélarnar safna upplýsingum um vefsíður, m.a. um titil og innihald, sumar einnig um lýsigögn, ef þau fylgja síðunni. Þegar notandi leitar að vefsíðu sem uppfyllir tiltekin skilyrði, leitar leitarvélin í þeim upplýsingum sem hún hefur áður safnað. Leitarvélar flokka eða raða síðum sem uppfylla sömu skilyrðin. Aðferðirnar sem leitarvélarnar nota við þessa röðun eru mismunandi.
- Almennt um leitarvélar (wikipedia.org)
- Lýsigögn
- Skráning vefsetra til leitarvéla (Vefsíða Phil Bradley's, philb.com)
