Lýsigögn
Lýsigögn (e.metadata) eru eins og nafnið bendir til upplýsingar sem lýsa öðrum gögnum. Lýsigögn geta haft að geyma upplýsingar um t.d. staðsetningu, uppruna, aldur eða efni gagnanna sem þau lýsa. Einfalt dæmi um lýsigögn er spjaldskrá bókasafns.
Sumar leitarvélar fyrir veraldarvefinn (World Wide Web) nýta lýsigögn vefsíðna við að finna síður. Lýsigögn er hægt að skrá beint í kóða síðunnar. Flest vefumsjónarkerfi bjóða upp á þægilega skráningu grunnlýsigagna fyrir síðuna. Lýsigögn fyrir þessa síðu má sjá hér að neðan eins og þau birtast í kóða síðunnar:
- <title>Lýsigögn</title>
- <meta name="description" content="Stutt samantekt um lýsigögn (Meta Data) ásamt útskýringum og krækjum í gagnlegar síður.">
- <meta name="keywords" content="lýsigögn, Meta Data, Dublin Core, leit, leitarorð, lykilorð">
- <meta name="author" content="Forsætisráðuneytið 2006">
Dublin Core staðallinn, (The Dublin Core Metadata Initiative) sem gjarnan er notaður sem viðmið við lýsigagnaskráningu, gerir ráð fyrir 15 grunnatriðum í lýsigagnaskráningu (Dublin Core Metadata Element Set).
Menn greinir á um hversu gagnlegt það sé að skrá lýsigögn fyrir vefsíður þar sem leitarvélar virðast treysta æ betur á eigin aðferðir við að finna efni á vefnum. Meginskýringin á því er að talsvert hefur verið um að menn skrái villandi lýsigögn fyrir síður sínar í þeim tilgangi að auka umferð um eigin vefi. Stöðluð lýsigagnaskráning á efnismiklum vefsvæðum getur þó gert gæfumuninn fyrir öfluga innri leit.
- Lýsigagnastaðall - Dublin Core (The Dublin Core Metadata Initiative)
- Spurt og svarað um Dublin Core (DCMI Frequently Asked Questions)
- Metadata (wikipedia.org)
- Meta Tags (Vefsíða Phil Bradley's, philb.com)
- Úr útgáfuskrá menntamálaráðuneytisins
- Almennt um leitarvélar (wikipedia.org)
- Leit
