Samráð og samskipti
Í stefnunni um upplýsingasamfélagið, Auðlindir í allra þágu, er fjallað um hvernig styrkja megi lýðræðislega stjórnarhætti með þeim möguleikum sem ný tækni býður upp á og stuðla að auknum gæðum í stjórnsýslunni.
Þar er einnig tilgreint verkefni sem felur í sér að kannað verði hvernig og á hvaða sviðum auka megi samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila. Segir þar enn fremur að hvetja eigi sveitarfélög, ráðuneyti og ríkisstofnanir til að koma upp umræðutorgun þar sem fram fari skoðanaskipti um afmörkuð málefni.
Sveitarfélagið Garðabær og félagsmálaráðuneyti gerðu, í samráði við Verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið, tilraunir með notkun umræðutorga, netspjalls og rafrænna kannana. Fyrir liggja skýrslur um niðurstöður þeirra tilrauna og eru þær birtar hér ásamt öðru efni sem málinu tengist..
Einnig hefur Verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið tekið saman ábendingar en tilgangur þeirra er að auðvelda stofnunum, ráðuneytum og sveitarfélögum að auka samráð og samskipti við almenning. Hér er átt við samráð við stefnumótun eða gerð lagafrumvarpa, opna umræðu um afmörkuð málefni, beina rauntímaþjónustu á vef, rafrænar kannanir eða bein rauntímasamskipti almennings við kjörna fulltrúa svo dæmi séu tekin.
Ábendingar um umræðutorg, netspjall og rafrænar kannanir (PDF50,0Kb)
