Staðlar
Í stöðlum eru settar fram viðmiðunarreglur er varða þær vörur, þjónustu, vinnslu eða aðferðir sem staðallinn tekur til. Öllum er frjálst að nýta sér viðmiðunarreglur í stöðlum. Markmið slíkra viðmiðunarreglna er að auka skilvirkni til hagsbóta fyrir sem flesta.
Í mörgum framleiðslugreinum eru gerðar kröfur um að vörur séu framleiddar samkvæmt stöðlum. Það tryggir notagildi vörunnar á sem flestum stöðum. Viðurkenndir og óháðir vottunaraðilar geta að lokinni úttekt framleiðslunnar vottað að framleiðslan fylgi þeim staðli eða stöðlum sem miðað var við. Til að halda vottun þarf viðurkenndur vottunaraðili að gera reglubundna úttekt á framleiðslunni - með jákvæðum árangri. Jafnframt því að vera yfirlýsing framleiðandans um að framleiðsla hans fylgi viðkomandi staðli er vottunin trygging viðskiptavinarins fyrir því sama. Framleiðslan, varan, þarf ekki að vera áþreifanleg, getur t.d. verið vinnsla eða ákveðið verklag við veitingu þjónustu.
Fjöldamargir alþjóðlegir staðlar varða upplýsingatækni á einn eða annan hátt. Ýmsir tæknilegir staðlar miða m.a. að því að gera samskipti milli tækja og kerfa möguleg. Aðrir staðlar eru skipulags- eða stjórnunarlegs eðlis og lúta að verklagi.
Eftirfarandi íslenskir staðlar (m.v. febrúar 2007) fjalla um upplýsingatækni:
- ÍST 32:1995 Almennir skilmálar um útboð og verksamninga vegna gagnavinnslukerfa.
- ÍST 130:2004 Upplýsingatækni - íslenskar kröfur.
- ÍST ISO/IEC 17799:2005 Upplýsingatækni - Öryggistækni -Starfsvenjur fyrir stjórnun upplýsingaöryggis. Staðallinn inniheldur leiðbeiningar.
- ÍST ISO/IEC 27001:2005 Upplýsingatækni – Öryggistækni – Stjórnkerfi upplýsingaöryggis - Kröfur. Staðallinn inniheldur kröfur, hægt að sækja um vottun gagnvart þessum staðli.
Stjórnkerfi upplýsingaöryggis er hluti af heildarstjórnkerfi fyrirtækis. Því er ætlað að viðhalda og auka öryggi upplýsinga, þar sem meginþættirnir eru varðveisla leyndar, réttleika og tiltækileika upplýsinga.
Á vefsetri alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO er að finna upplýsingar um starfsemi ISO og ISO staðla. Meðal annars er fjallað um staðla sem náð hafa mikilli útbreiðslu og nefndir um upplýsingatækni.
Á vefsetri Staðlaráðs Íslands er hægt að panta íslenska og alþjóðlega staðla.
Þá eru til ýmsir alþjóðlegir rammar og leiðbeiningar sem líta má á sem staðla. Þar má nefna Cobit, sem er rammi fyrir stjórnun í upplýsingatækni.
- Staðlaráð Íslands
- Alþjóðlegu staðlasamtökin ISO
- ISO staðlar sem náð hafa mikilli útbreiðslu
- ISO nefndir um upplýsingatækni
-
Staðlar frá IEEE (Institute of Electrical and Electronics Engineer, Alþjóðlega rafmagnsverkfræðifélagið)
