Tölvuský

Tölvuský

Með tilkomu tölvuskýja hefst þróun á nýju viðskiptalíkani fyrir tölvuþjónustu þar sem stefnt er að því að hægt verði að kaupa upplýsingatækniþjónustu á svipaðan hátt og rafmagn þ.e. að greitt sé í samræmi við notkun.

Tölvuský er tiltölulega nýtt hugtak. Í því felst aðferð til að lækka kostnað, auka nýtingu búnaðar og auka afköst tölvudeilda. Það er gert með því að kaupa aðgang að gagnageymslum, hugbúnaði og þjónustu þar sem aðeins er greitt fyrir það gagnarými sem nýtt er eða fyrir hugbúnað og þjónustu í samræmi við notkun, svo dæmi sé tekið. Lítil umræða farið fram um tölvuský fyrir opinbera aðila á Íslandi og almennt má segja að opinberi geirinn á Norðurlöndum hafi hingað til helst horft til svokallaðra einkaskýja eða opinberra skýja sem ná aðeins til opinbera geirans.

Norræn skýrsla

Í árslok 2011 kom út norræn skýrsla um tölvuský í opinberum rekstri sem unnin var fyrir Norrænu ráðherranefndina. Yfirskrift skýrslunnar er „Nordic Public Sector Cloud Computing – A discussion paper“. Í skýrslunni er m.a. fjallað um kosti tölvuskýja fyrir opinberar stofnanir og hvernig sé hægt nýta þau í því umhverfi sem opinberar stofnanir búa við. Ríkisstofnanir og sveitarfélög eru stórir kaupendur tölvubúnaðar og þjónustu af ýmsu tagi og eru tölvuský valkostur sem í auknum mæli er í boði á markaði. Tölvuský eru nú mikið til umfjöllunar bæði á vettvangi Evrópusambandsins og í norrænni samvinnu þar sem almennt er talið að hér sé um að ræða tækifæri til hagræðingar til framtíðar litið og um leið tækifæri fyrir Evrópulönd til að skapa störf í upplýsingatækniiðnaði í tengslum við starfrækslu tölvuskýja.

Á markað eru komnar ýmsar tegundir lausna sem flokkast undir tölvuský sem gætu hentað stofnunum. Hins vegar getur verið snúið fyrir opinbera aðila að átta sig á lagalegum, fjárhagslegum, tæknilegum og öryggislegum þáttum sem hafa þarf í huga við kaup á slíkri þjónustu. Um leið er brýnt að opinberir aðilar nýti sem best þann ávinning sem falist getur í tölvuskýjum af ýmsu tagi og ryðji úr vegi hindrunum á þessu sviði.

Efni um tölvuský







Útlit síðu: