Verkefnisstjórnun
Verkefnisstjórnun snýst um að leiða verkefni á skipulegan hátt að fyrirfram settu takmarki og nýta auðlindir (mannafla, tíma, fjármuni og efni) á sem bestan hátt. Verkefni í þessu samhengi hefur upphaf og endi í tíma, hefur kostnaðarmörk og skilar ákveðinni afurð.
Í verkefnisstjórnun felst skipulagning verkefnisþátta, mannafla og annarra auðlinda, vöktun og eftirlit, upplýsingamiðlun og yfirsýn yfir alla þætti verkefnis. Verkefnisstjórnun er ætlað að vera hvetjandi fyrir þátttakendur í verkefni til að ná markmiðum verkefnis.
Til eru margar aðferðir við verkefnisstjórnun. Í hefðbundinni verkefnisstjórnun er hægt að greina á milli fimm meginhluta: Upphafs, skipulagningar/áætlanagerðar, framkvæmdar, eftirlits og loka. Aðrar aðferðir byggja á ítrun, þar sem litið er á verkefnið sem röð smærri verkefna. Ávallt þarf að greina þarfir eða kröfur, ákvarða eða hanna lausn, afla nauðsynlegra aðfanga (mannafla, fjármagns, efnis), koma lausn í framkvæmd og huga að viðhaldi eða eftirþróun.
Prince2 verkefnisstjórnun er aðferð sem á uppruna sinn í kröfum breska ríkisins til upplýsingatækniverkefna. Aðferðin nýtur nú mikillar útbreiðslu og notkun hennar hefur farið vaxandi hér á landi, bæði í einkageiranum og opinbera geiranum. Litið er svo á að verkefni samanstandi af átta meginferlum sem tengjast innbyrgðis og átta þáttum sem verka á ferlin. Sjá einnig um Prince2 á Wikipedia alfræðiritinu.
- Verkefnastjórnunarfélag Íslands
- Almennt um verkefnisstjórnun, (wikipedia.org)
- Prince2 verkefnisstjórnun (ogc.gov.uk)
- Prince2 (wikipedia.org)
- Kvik hugbúnaðarþróun (wikipedia.org)
