Beint í leiðarkerfi vefsins.
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra afhenti fimmtudaginn 20. maí, heiðursverðlaun Skýrslutæknifélags Íslands en verðlaunin eru nú veitt í fyrsta sinn. Þau eru veitt til einstaklings fyrir framúrskarandi framlag til upplýsingatækni á Íslandi. Afhending verðlaunana var hluti af dagskrá UT dagsins sem fór fram í Salnum í Kópavogi.
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að hefja undirbúning fyrir stofnun upplýsingatæknimiðstöðvar. Sett verður á fót framkvæmdanefnd sem mun útfæra tillögur um skipulag og starfsemi miðstöðvarinnar og móta henni fjárhagsáætlun.
Lesa meiraRáðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins, inngönguríkja, umsóknarríkja og EFTA-ríkja samþykktu á fundi í Malmö þann 18. nóvember 2009 yfirlýsingu um stefnu í rafrænni stjórnsýslu fram til ársins 2015. Fundurinn var haldinn í tengslum við ráðherraráðstefnu um rafræna stjórnsýslu sem Svíar stóðu fyrir í tengslum við formennsku sína í ráðherraráði ESB.
Lesa meiraDagur upplýsingatækninnar 2010 verður haldinn 20. maí nk. Að þessu sinni verða 2 ráðstefnur haldnar á UT-deginum og er hægt að taka þátt í þeim báðum eða velja aðra þeirra. Báðar ráðstefnurnar verða í Salnum í Kópavogi. Í lok dagsins verða Upplýsingatækniverðlaun Ský veitt og boðið verður uppá léttar veitingar.
Ríkisendurskoðun hefur gefið út rit sem ætlað er að fræða starfsmenn ríkistofnana um möguleika svokallaðs frjáls hugbúnaðar og leiðbeina um val á slíkum hugbúnaði. Í ritinu kemur fram að kostnaður íslenska ríkisins vegna kaupa á hugbúnaði hafi numið rúmlega 7,5 ma.kr. á tímabilinu 2006 til 2008.
Lesa meiraNiðurstöður þriðju könnunar á opinberum vefjum liggur fyrir. Könnunin var sem fyrr tvíþætt. Annars vegar voru vefirnir metnir af sérfræðingum samkvæmt gátlistum um innihald, nytsemi, aðgengi og þjónustu. Hins vegar svöruðu forsvarsmenn vefjanna spurningalista. Metnir voru 274 vefir ríkisstofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga. Svarhlutfall var um 90%.
Lesa meira
Ríkisstjórnin gaf í dag út nýja stefnu um upplýsingasamfélagið og var hún kynnt í fyrsta sinn á UT-ráðstefnunni sem haldin var í tilefni dags upplýsingatækninnar.
Lesa meiraForsætisráðuneytið, í samvinnu við Skýrslutæknifélag Íslands, stendur fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Netríkið Ísland í tilefni af degi upplýsingatækninnar. Ráðstefnan verður haldin á Hilton Nordica, miðvikudaginn 7. maí kl. 13:00-16:15. Þar verður kynnt ný stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið og nokkur lykilverkefni sem unnið verður að á framkvæmdatíma stefnunnar. Skráning og frekari upplýsingar á (www.sky.is
).
Lesa meira
Upplýsingatæknidagurinn, UT-dagurinn, verður haldinn í fyrsta sinn þann 24. janúar nk. Hann er haldinn til að vekja athygli á þeim tækifærum sem Íslendingar hafa á sviði upplýsingatækni, upplýsingatækniiðnaðar og fjarskipta.
Lesa meira
Það er hlutverk Icepro að fræða atvinnulífið hér um það sem er nýjast og merkast í rafrænum samskiptum í kringum okkur, til þess að gera fyrirtækjum og stofnunum kleift að taka þátt í þeirri þróun sem þar fer fram.
Lesa meira
Skýrsla Norræna ráðherraráðsins sem unninn var í samvinnu við hagstofur Norðurlandanna. Í henni eru birtar niðurstöður um ýmis málefni sem snerta upplýsingasamfélagið á Norðurlöndum.
Lesa meiraStjórnvöld, í samvinnu við upplýsingatækniiðnaðinn, standa fyrir sérstökum upplýsingatæknidegi þann 24. janúar nk undir nafninu UT-dagurinn.
Lesa meiraRáðherraráðstefna um rafræna stjórnsýslu fer fram dagana 24. og 25. nóvember í Manchester á Englandi.
Samgönguráðherra hefur, í ljósi umræðu um fjarskiptaöryggi og ásakana í garð fjarskiptafyrirtækja, sent Póst- og fjarskiptastofnun bréf þess efnis að stofnunin bregðist sérstaklega við til þess að tryggja öryggi á þessu sviði.
Í stefnu ríkisstjórnarinnar Auðlindir í allra þágu segir meðal annars að tryggja verði að rafræn þjónusta opinberra aðila taki mið af þörfum ólíkra hópa, s.s. blindra, sjónskertra og fatlaðra.
Lesa meiraÍ apríl 2005 kom út skýrsla um opinn hugbúnað. Hún fjallar um það hvort og hvernig opinn hugbúnaður geti verið valkostur við séreignarhugbúnað. Fyrirtækið ParX – viðskiptaráðgjöf IBM vann skýrsluna fyrir Verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu. Markmiðið með henni er að undirbúa stefnumótun stjórnvalda um notkun opins hugbúnaðar.
Lesa meiraForsætisráðuneytið, í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, vinnur nú að úttekt á vefjum ríkisstofnana og sveitarfélaga. Verkefnið er liður í stefnu ríkisstjórnarinnar, Auðlindir í allra þágu sem kom út í mars 2004. Þar eru sett fram markmið um að tekið verði saman yfirlit yfir þá rafrænu þjónustu sem er í boði hjá opinberum aðilum.
Lesa meiraForsætisráðuneyti hefur gert samning við félagsmálaráðuneytið og Garðabæ um að þessir aðilar taki að sér að gera tilraunir með umræðutorg í anda stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið.
Lesa meiraAf þeim 104 þjóðum sem Alþjóðaefnahagsráðið nær til er Ísland í 2. sæti yfir þjóðir sem nýta vel nýja upplýsinga- og fjarskiptatækni.
Menntamálaráðuneyti hefur á árunum 1998-2004 unnið að tungutækniverkefni sem skilað hefur umtalsverðum árangri.
Lesa meiraForsætisráðuneyti hefur skipað verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu. Skipunin er í samræmi við stefnu ríkisstjórnar Íslands frá febrúar 2004 sem ber yfirskriftina: Auðlindir í allra þágu - Stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingsamfélagið 2004-2007.
Lesa meira
Skipuð hefur verið ný Verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið sem hefur það hlutverk að fylgja eftir nýrri stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum upplýsingasamfélagsins.
Lesa meira
Einstaklingurinn, tækifæri hans og velferð í samfélaginu eru leiðarljós nýrrar stefnu um upplýsingasamfélagið. Í henni segir m.a. að upplýsingatækni veiti einstaklingum, atvinnulífi og opinberri þjónustu tækifæri til að nýta sér þær auðlindir sem felast í upplýsingum, þekkingu og nýsköpun.
Lesa meira
Þann 2. september náðist sá ánægjulegi áfangi að nýr sæsímastrengur, FARICE-1, var tekinn á land við Seyðisfjörð. Með tilkomu hans mun gagnaflutningsgeta fjarskiptakerfa milli Íslands og Evrópu margfaldast.
Lesa meira
Dagana 7.-8. júlí gekkst Evrópusambandið fyrir ráðherrafundi og ráðstefnu um rafræna stjórnsýslu (eGovernment) í Como á Ítalíu.
Lesa meiraMenntamálaráðherra hefur úthlutað styrkjum af fé því sem veitt er vegna upplýsingatækni í almenningsbókasöfnum í samræmi við bráðabirgðaákvæði í lögum
Lesa meira