Fréttir

Hvað er spunnið í opinbera vefi 2007 - Niðurstöður - 14/12/07 Fréttir

Rafræn þjónusta opinberra aðila hefur aukist frá árinu 2005. Nú bjóða 19% stofnana upp á fullkomlega rafræna afgreiðslu erinda en fyrir tveimur árum buðu 3% upp á slíka þjónustu. Lesa meira
 

Hvað er spunnið í opinbera vefi 2007? - 4/12/07 Fréttir

Forsætisráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa látið gera úttekt á á vefjum 280 stofnana ríkis og sveitarfélaga. Fyrirtækið Sjá ehf framkvæmdi úttektina. Skýrslutæknifélagið boðar til hádegisverðarfundar á Grand Hótel þann 13. desember 2007, frá kl. 12:00 - 14:00 þar sem kynntar verða niðurstöður úttektarinnar. Lesa meira
 

Ráðherraráðstefna um rafræna stjórnsýslu í Lissabon - Ráðherrayfirlýsing - 5/11/07 Fréttir

Ráðstefnan fór fram dagana 19. - 21. september 2007 og bar yfirskriftina Hvernig nýta má kosti rafrænnar stjórnsýslu (e. Reaping the Benefits of eGovernment). Markmiðin með ráðstefnunni voru að fara yfir það helsta sem hefur áunnist í rafrænni stjórnsýslu, greiða götu áframhaldandi þróunar og marka stefnu fyrir næstu ár.

Lesa meira
 

Endurnot opinberra upplýsinga - 10/9/07 Fréttir

Forsætisráðuneytið, LÍSU samtökin og ePSIplus verkefni Evrópusambandsins héldu hádegisverðarfund miðvikudaginn 5. september 2007 í Kornhlöðunni, Lækjarbrekku, Bankastræti 2.

Lesa meira
 

Úttekt á framkvæmd stefnunnar um upplýsingasamfélagið árin 2004-2007 - 24/8/07 Fréttir

Hafin er úttekt sem ætlað er að varpa ljósi á hvernig til hefur tekist með framkvæmd stefnu upplýsingasamfélagsins Auðlindir í allra þágu, á árunum 2004-2007. Lesa meira
 

Úttekt á opinberum vefjum - 24/8/07 Fréttir

Forsætisráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga standa fyrir úttekt á opinberum vefjum á Íslandi. Úttektin hefur farið fram nú í sumar og er niðurstaðna að vænta á haustmánuðum 2007 og verða þær rækilega kynntar. Lesa meira
 

Verðlaun fyrir verkefni á sviði rafrænnar stjórnsýslu - 11/4/07 Fréttir

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins auglýsir nú í þriðja sinn eftir upplýsingum um góð verkefni á sviði rafrænnar stjórnsýslu innan ESB og EES. Lesa meira
 
Gervihnattadiskur

Glærur og upptaka frá ráðstefnu - 7/3/07 Fréttir

Upptaka frá ráðstefnunni Nýtum tímann - Notum tæknina sem haldin var í Salnum í Kópavogi er nú opin öllum. Einnig eru glærur fyrirlesara aðgengilegar. Lesa meira
 
UT-blaðið 2007 - forsíða

03.03.07 UT-blaðið 2007 - 5/3/07 UT-blaðið 2007

UT-blaðinu 2007 var dreift með Morgunblaðinu laugardaginn 3. mars og er birt hér í heild sinni á rafrænu sniði. Jafnframt verða einstakar greinar blaðsins birtar hér á UT-vefnum. Lesa meira
 
UT-merkið

UT DAGURINN - 26/2/07 Fréttir

Forsætis- og fjármálaráðuneyti standa að undirbúningi UT-dagsins sem haldinn verður 8. mars nk. Lögð verður áhersla á mikilvægi upplýsingatækninnar sem verkfæris til að minnka skriffinnsku, spara tíma og auka hagræði. Lesa meira
 

Nýtum tímann - Notum tæknina Dagskrá UT-ráðstefnunnar 2007 - 14/2/07 Fréttir

Í tilefni UT-dagsins standa forsætis- og fjármálaráðuneyti fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Nýtum tímann – Notum tæknina í Salnum, Kópavogi, 8. mars nk. kl. 13:00-16:30. Lesa meira
 

Tillögur að stefnu um opinn hugbúnað - 9/2/07 Fréttir

Verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu sem starfar í forsætisráðuneyti hefur unnið tillögur að stefnu stjórnvalda um opinn hugbúnað. Lesa meira
 

Breiður hópur sýnenda á Tækni og viti 2007 - 2/2/07 Fréttir

Nú styttist óðum í stórsýninguna Tækni og vit 2007 og stefnir allt í að hún verði einn stærsti viðburður í íslenskum tækni- og þekkingariðnaði frá upphafi. Lesa meira
 

UT-ráðstefnan 2007 - 2/2/07 Fréttir

Í tilefni UT-dagsins standa forsætis- og fjármálaráðuneytið að ráðstefnu í Salnum, Kópavogi, 8. mars kl. 13.00 til 16.30. Á ráðstefnunni verður m.a. fjallað um þjónustuveituna Ísland.is, nýjungar í þjónustu sveitarfélaga, rafræn skilríki og rafræn innkaup en þessir þættir munu skipta sífellt meira máli í þjónustu opinberra aðila á komandi árum. Lesa meira
 

UT-blaðið 2007 - 2/2/07 Fréttir

UT-dagurinn verður haldinn á vegum forsætis- og fjármálaráðuneyta þann 8. mars næstkomandi. Með honum vilja ráðuneytin vekja athygli á þeim tækifærum sem Íslendingar hafa á sviði upplýsingatækni, rafrænnar þjónustu og fjarskipta. Lesa meira
 
Er veraldarvefurinn völundarhús

Er Veraldarvefurinn völundarhús? - 31/1/07 Fréttir

SAFT, Síminn, Microsoft, SMÁÍS og Samtónn boða til ráðstefnu um skynsama notkun og örugg samskipti á Netinu á Alþjóðlega netöryggisdaginn þann 6. febrúar nk. Lesa meira
 

Handbók fyrir rafræn innkaup í XML er komin út - 31/1/07 Fréttir

Komnar eru út samnorrænar leiðbeiningar um notkun XML staðalsins UBL 2.0 frá OASIS. Í þeim er tekið tillit til þarfa Íslendinga. Þar með er leiðin greið fyrir samræmdar XML sendingar rafrænna reikninga, pantana og vörulista. Lesa meira
 






Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica