Fréttir

Hvað er spunnið í opinbera vefi 2009? - 22/12/09 Vefkönnun 2009

Niðurstöður þriðju könnunar á opinberum vefjum liggur fyrir. Könnunin var sem fyrr tvíþætt. Annars vegar voru vefirnir metnir af sérfræðingum samkvæmt gátlistum um innihald, nytsemi, aðgengi og þjónustu. Hins vegar svöruðu forsvarsmenn vefjanna spurningalista. Metnir voru 274 vefir ríkisstofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga. Svarhlutfall var um 90%.

Lesa meira

Niðurstöður könnunar kynntar 16. desember - 11/12/09 Fréttir

Forsætisráðuneytið hefur látið gera úttekt á vefjum hátt í þrjú hundruð stofnana ríkis og sveitarfélaga. Fyrirtækið Sjá ehf framkvæmdi úttektina. Skýrslutæknifélagið boðar til hádegisverðarfundar á Grand Hótel miðvikudaginn 16. desember 2009, frá kl. 12:00 - 14:00 þar sem kynntar verða niðurstöður úttektarinnar. Fundurinn ber yfirskriftina „Hvað er spunnið í opinbera vefi 2009?“. Lesa meira

Staðlastofnun Evrópu (CEN) hefur gefið út tækniforskrift (CWA) fyrir rafræn innkaup - 10/12/09 Fréttir

Vinnuhópurinn WS/BII hefur lokið 26 umgjörðum, sem snerta rafræn innkaup. Tækniforskriftin nær yfir innihaldslýsingar skeyta, dæmi, leiðbeiningar, verkfæri, svo og samræmdar tillögur um málskipan XML skjalanna. Lesa meira

Verkfærakistan verkefni vikunar á epractice.eu - 20/10/09 Fréttir

Verkfærakista forsætisráðuneytisins hefur verið valin verkefni vikunar á vefnum epractice.eu. Vefurinn epractice.eu er samvinnuvettvangur fyrir alla þá sem vinna að verkefnum í rafrænni stjórnsýslu innan ESB og EFTA. Lesa meira

Lyklar að hraða og hagræðingu - rafrænir reikningar, pantanir og önnur viðskiptaskjöl - 13/10/09 Fréttir

Skýrslutæknifélag Íslands og FUT, fagstaðlaráð Staðlaráðs í upplýsingatækni, efna til ráðstefnu um rafræn viðskiptaskjöl og tengda þjónustu á Grand Hótel þann 14. október n.k., frá kl. 13 - 17. Þar verður m.a. nýtt efni um rafræn viðskipti á UT-vefnum kynnt. Lesa meira

Úttekt á OpenOffice.org skrifstofuvöndlinum - 10/9/09 Útgáfa

Ríkisskattstjóri hefur gert úttekt á frjálsum og opnum skrifstofuhugbúnaði fyrir forsætisráðuneytið. Verkefni RSK fólst annars vegar í að prófa helstu kerfishluta OpenOffice.org og hins vegar í að prófa samskipti innanhússkerfa RSK við hugbúnaðinn. Lesa meira

Arðsemi rafrænnar stjórnsýslu metin með staðalkostnaðarlíkaninu - 10/9/09 Útgáfa

Pricewaterhouse Coopers hefur lokið við verkefni fyrir forsætisráðuneyti sem snérist um að leggja mat á arðsemi rafrænnar stjórnsýslu. Verkefni PwC fólst í að nota staðalkostnaðarlíkanið til að mæla arðsemi innleiðingar rafrænna stjórnsýslukerfa og einföldunaraðgerða fyrir notendur opinberrar þjónustu. Lesa meira

Úttekt á tæplega 300 opinberum vefjum - 24/6/09 Fréttir

Um þessar mundir stendur forsætisráðuneytið fyrir úttekt á opinberum vefjum með tilliti til rafrænnar þjónustu. Úttektin nær til vefja ríkisstofnana, ráðuneyta, sveitarfélaga, sérvefja og opinberra hlutafélaga. Þetta er í þriðja sinn sem úttekt af þessu tagi er gerð en þær hafa áður farið fram árin 2005 og 2007. Lesa meira

Rafræn eyðublöð og XML skema - 12/6/09 Útgáfa

Út er komin skýrsla á vegum forsætisráðuneytisins þar sem fjallað er um gerð XML skema fyrir rafræn samskipti m.a. með tilliti til rafrænna eyðublaða. Í hennni eru lögð fram frumgerð að tilraunaútgáfu á stöðlungi1 sem lýst er með XML skema. Lesa meira

Verkfærakista í boði forsætisráðuneytis - 8/6/09 Fréttir

Forsætisráðuneytið hefur komið upp verkfærum til að auðvelda opinberum aðilum að bjóða upp á rafræna þjónustu fyrir viðskiptavini sína. Þessi verkfæri standa öllum opinberum stofnunum og sveitarfélögum til boða með litlum tilkostnaði af þeirra hálfu.

Lesa meira

Efni frá ráðstefnu UT-dagsins komið á vefinn - 27/5/09 Fréttir

Glærur og myndir frá ráðstefnunni Upplýsingatækni til endurreisnar sem haldin var 19. maí sl. eru nú aðgengilegar hér á vefnum. Lesa meira

Dagur upplýsingatækninnar - Upplýsingatækni til endurreisnar - 13/5/09 Fréttir

Dagur upplýsingatækninnar, verður haldinn þriðjudaginn 19. maí. Af því tilefni er boðað til ráðstefnu þar sem fjallað verður um hvernig upplýsingatæknin geti nýst opinberum stofnunum, fyrirtækjum og almenningi í því endurreisnarstarfi sem fyrir höndum er í íslensku samfélagi. Lesa meira

Dagskrá ráðstefnu sem haldin er í tilefni UT- dagsins 2009 - 11/5/09 Fréttir

Í tilefni af UT-deginum 19. maí verður haldin ráðstefna á Hótel Hilton Nordica. Ráðstefnan hefst kl. 12 og stendur til kl. 17. Hægt er að skrá sig á vef sky.is, senda tölvupóst á sky@sky.is eða hafa samband í síma 553 2460. Lesa meira

Faghópur um rafræna opinbera þjónustu - 14/4/09 Fréttir

Faghópur um rafræna opinbera þjónustu á vegum Skýrslutæknifélagins var stofnaður í janúar 2009. Markmið faghópsins er meðal annars að skapa vettvang fyrir faglega umræðu um rafræna opinbera þjónustu. Lesa meira

Nýtt fræðsluefni hér á vefnum - 3/4/09 Fréttir

Tvær nýjar „handbækur“ um upplýsingatækni eru nú aðgengilegar hér á UT-vefnum. Vefhandbók um opinbera vefi er leiðarvísir um uppsetningu og viðhald vefja. Stafrænt frelsi er fræðsluefni um opinn og frjálsan hugbúnað, opna staðla og frjálst samfélag. Lesa meira

Ný könnun á opinberum vefjum - 1/4/09 Fréttir

Forsætisráðuneytið stendur fyrir þriðju könnuninni á opinberum vefjum á vor- og sumarmánuðum 2009. Markmiðið með könnuninni er að fylgjast með framþróun vefja ríkis og sveitarfélaga og þeirrar þjónustu sem almenningi og atvinnulífi er veitt er á vefjunum. Lesa meira

Netríkið Ísland: Sjálfshjálp um vefi og opinn hugbúnað - 24/3/09 Fréttir

Skýrslutæknifélagið og forsætisráðuneyti standa fyrir ráðstefnu á Grand Hótel 2. apríl kl. 12-14. Þar verður kynnt nýtt fræðsluefni á ut-vefnum, annars vegar handbók um opinbera vefi og hins vegar fræðsluefni um stafrænt frelsi. Lesa meira






Útlit síðu: