Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra afhenti fimmtudaginn 20. maí, heiðursverðlaun Skýrslutæknifélags Íslands en verðlaunin eru nú veitt í fyrsta sinn. Þau eru veitt til einstaklings fyrir framúrskarandi framlag til upplýsingatækni á Íslandi. Afhending verðlaunana var hluti af dagskrá UT dagsins sem fór fram í Salnum í Kópavogi.
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að hefja undirbúning fyrir stofnun upplýsingatæknimiðstöðvar. Sett verður á fót framkvæmdanefnd sem mun útfæra tillögur um skipulag og starfsemi miðstöðvarinnar og móta henni fjárhagsáætlun.
Lesa meiraRáðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins, inngönguríkja, umsóknarríkja og EFTA-ríkja samþykktu á fundi í Malmö þann 18. nóvember 2009 yfirlýsingu um stefnu í rafrænni stjórnsýslu fram til ársins 2015. Fundurinn var haldinn í tengslum við ráðherraráðstefnu um rafræna stjórnsýslu sem Svíar stóðu fyrir í tengslum við formennsku sína í ráðherraráði ESB.
Lesa meiraDagur upplýsingatækninnar 2010 verður haldinn 20. maí nk. Að þessu sinni verða 2 ráðstefnur haldnar á UT-deginum og er hægt að taka þátt í þeim báðum eða velja aðra þeirra. Báðar ráðstefnurnar verða í Salnum í Kópavogi. Í lok dagsins verða Upplýsingatækniverðlaun Ský veitt og boðið verður uppá léttar veitingar.
Ríkisendurskoðun hefur gefið út rit sem ætlað er að fræða starfsmenn ríkistofnana um möguleika svokallaðs frjáls hugbúnaðar og leiðbeina um val á slíkum hugbúnaði. Í ritinu kemur fram að kostnaður íslenska ríkisins vegna kaupa á hugbúnaði hafi numið rúmlega 7,5 ma.kr. á tímabilinu 2006 til 2008.
Lesa meira