Hoppa yfir valmynd
24. júní 2009 Innviðaráðuneytið

Úttekt á tæplega 300 opinberum vefjum

Hvað er spunnið í opinbera vefi 2009?Um þessar mundir stendur forsætisráðuneytið fyrir úttekt á opinberum vefjum með tilliti til rafrænnar þjónustu. Úttektin nær til vefja ríkisstofnana, ráðuneyta, sveitarfélaga, sérvefja og opinberra hlutafélaga. Þetta er í þriðja sinn sem úttekt af þessu tagi er gerð en þær hafa áður farið fram árin 2005 og 2007. Sjá ehf. var fengið til að framkvæma og hafa umsjón með verkefninu.

Tilgangurinn með úttektinni er að fylgjast með hvernig þróun opinberra vefja hefur verið síðan árið 2005 þegar niðurstöður lágu fyrir í fyrsta skiptið. Auk þess að nota tékklista og spurningar sem áður hafa verið notaðar var nú einnig bætt við nýjum spurningum, í takt við það sem helst er að gerast á vefjum í dag og með tilliti til notendavænnar og rafrænnar þjónustu. Fróðlegt verður að bera saman niðurstöður þeirrar könnunar sem nú er farin af stað við niðurstöður fyrri kannanna og skoða þá þróun sem átt hefur sér stað.

Rafræn könnun hefur verður send til tengiliða vefjanna sem í úttektinni eru. Nokkurn tíma gæti tekið að svara öllum spurningunum þar sem um einhverja gagnaöflun gæti verið að ræða og tengiliðir eru beðnir að hafa það í huga. Nánari upplýsingar um úttektina má fá hjá Áslaugu Friðriksdóttur eða Jóhönnu Símonardóttur hjá Sjá í síma 511-3110 eða með tölvupósti, [email protected].

Skilafrestur könnunarinnar er til 28. ágúst en gert er ráð fyrir að niðurstöður muni liggja fyrir á haustmánuðum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum