Vefkönnun 2007
Hvað er spunnið í opinbera vefi 2007?
Forsætisráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa látið gera úttekt á opinberum vefjum.
Markmiðið með úttektinni var að fá heildstætt yfirlit yfir þá þjónustu sem er í boði á vefjum ríkis og sveitarfélaga en einnig að auka vitund opinberra aðila um það hvar þeir standa í samanburði við aðra og gefa betri hugmynd um möguleika og tækifæri sem felast í rafrænni þjónustu. Skoðaðir voru 262 vefir ríkisstofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga, að meðtöldum sérstökum þjónustuvefjum sem nokkrar stofnanir hafa komið sér upp. Sambærileg úttekt var gerð árið 2005 og því er nú hægt að skoða þær framfarir sem átt hafa sér stað á þessum tveimur árum.
Sjá ehf vann úttektina fyrir forsætisráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga og hér er hægt að skoða niðurstöðurnar fyrir heildina og einstakar stofnanir.
- Skýrsla með heildarniðurstöðum, Sjá ehf (pdf-skjal)
- Skýrsla með heildarniðurstöðum, Sjá ehf. á ensku (pdf-skjal)
- Kynningarglærur frá Sjá ehf (pdf-skjal)
- Kynning - Áslaug Friðriksdóttir frá Sjá ehf
- Markmið og framkvæmd, Halla Björg Baldursdóttir (pdf-skjal)
| Sjá niðurstöður fyrir einstakar stofnanir >> |
|---|
Niðurstöður frá vefkönnun 2005 er einning að finna hér á vefnum.
Könnun á opinberum vefjum 2009 er nú í gangi.
