Fréttir

Inngangur - 30.4.2010

Síðan árið 2005 hafa Evrópuþjóðir stefnt að því að koma á sameiginlegu rafrænu innkaupakerfi árið 2010. Því er ætlað að taka á flestum hlutum aðfangakeðjunnar, en einkum þó rafrænum reikningum, þar sem ávinningurinn er mestur. Rafræn viðskipti hafa verið stunduð hér á landi í tvo áratugi. EDIFACT staðlar hafa gert stofnunum og fyrirtækjum kleift að skiptast á rafrænum skjölum, svo sem vörulistum, pöntunum, reikningum, tollskýrslum og greiðslum.

Lesa meira
 

Vinnuhópar tækninefndar FUT myndaðir - 30.4.2010

Tækninefnd um grunngerð rafrænna viðskipta hjá fagstaðlaráði Staðlaráðs í upplýsingatækni (FUT) hefur gangsett þrjá vinnuhópa sem munu vinna að gerð tækniforskrifta um BII 04 - Basic Invoice, BII 05 - Billing og BII 03 - Basic order.

Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Björnsdóttir, gudbjorg@stadlar.is.

Lesa meira
 

Af CEN/BII2 vinnuhópi Staðlasamtaka Evrópu um rafræn viðskipti - 30.4.2010

BII2 vinnuhópur CEN, Staðlasamtaka Evrópu héldu fyrsta fund sinn í febrúar síðastliðnum. BII2 (fasi-2) hópurinn byggir á vinnu upphaflega BII (fasa-1) hópsins, sem skilaði afurðum sínum í árslok 2009. Lesa meira
 






Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica