EDI
EDIFACT staðlar
Um 20 ára skeið hafa verið í notkun hér á landi svokallaðir EDIFACT staðlar. Þetta eru raunstaðlar, sem ICEPRO hefur tekið saman og aðlagað að íslenskum aðstæðum. Staðlar þessir eru til þess að gera fyrirtækjum kleift að skipta við hvert annað rafænt.
Reikningar, pantanir, vörulistar, tollskýrslur, greiðslur og fleiri rafræn skjöl berast á milli fyrirtækja með svokölluðum EDI skeytum, sem fylgja EDIFACT stöðlunum. EDI stendur fyrir "Electronic Data Interchange" og hefur verið þýtt sem "skjalaskipti milli tölva" eða SMT.
Notkun skeytanna er gríðarleg og ljóst að hérlendis skipta EDIFACT skeyti milljónum árlega. Vitað er að stærstu birgjar og verslanir senda og taka við tugþúsundum skeyta í hverjum mánuði. Fjöldi EDI skeyta á ári er um tvær milljónir vegna tollafgreiðslu. EDI/SMT leyfishafar tollsins eru nálægt 500.
Nánari upplýsingar um fjölda skeyta og fyrirtækja verða birtar hér síðar, þegar nýjar upplýsingar liggja fyrir.
