Frumkvöðlar
Sendill (Unimaze á Íslandi ehf)
Unimaze á Íslandi ehf er íslenskt frumkvöðlafyrirtæki sem sérhæfir sig í rafrænni skeytamiðlun og úrvinnslu rafrænna viðskiptaskjala.
Fyrirtækið var stofnað árið 2003 og hefur frá árinu 2006 unnið við ráðgjöf og þróun lausna fyrir rafræn viðskipti á Íslandi og í Evrópu. Starfsmenn Unimaze hafa verið virkir þátttakendur í staðlavinnu sem tengist rafrænum viðskiptum hér heima og erlendis og starfa nú að verkefni á vegum Staðlastofnunar Evrópu (CEN), við að sníða viðmiðunarreglur um meðferð rafrænna reikninga.
Í dag býður Unimaze íslenskum fyrirtækjum lausnir á sviði rafrænna viðskipta. Þjónustan er aðgengileg undir nafninu www.sendill.is og sér hún um að miðla rafrænum viðskiptaskjölum á milli fyrirtækja. Þjónustan styður við alla ráðandi formstaðla rafrænna skeyta, s.s. NES og CEN/BII, og grundvallast á ráðandi alþjóðlegum samskiptastöðlum, s.s. NemHandel og PEPPOL. Þá býður Unimaze einnig upp á samskipti samkvæmt ebMS ISO 15000-2 staðlinum.
Innleiðing skeytamiðlunar hjá www.sendill.is er unnin í samvinnu Unimaze og þjónustu- eða þróunaraðila viðkomandi viðskiptahugbúnaðar. Í dag erum við í samstarfi við nokkra af helstu þróunar- og þjónustuaðilum viðskiptahugbúnaðar á Íslandi.
Í dag getum við miðlað reikningum milliliðalaust til allra opinberra aðila sem taka við reikningum. Þá er skeytamiðlun okkar tengd við yfir 70.000 fyrirtæki í Danmörku sem vinna með reikninga, kreditnótur, pantanir og vörulista.
Sendill (Unimaze á Íslandi ehf)
Ofanleiti 2
103 Reykjavík
Sími: 588 7575
Netfang: info@unimaze.com
Veffang: www.unimaze.com/is og www.sendill.is
